Afkoma umfram áætlanir Samúel Karl Ólason skrifar 8. maí 2026 07:29 Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. Vísir/Vilhelm Afkoma Sýnar á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var umfram áætlanir og þykir stjórnendum félagsins það til marks um áframhaldandi viðsnúning í rekstri. Herdís Dröfn Fjelsted, forstjóri, segir þetta staðfestingu á að aðgerðir og umbreyting síðasta árs séu að skila árangri.
Heildartekjur Sýnar á tímabilinu voru um 5,5 milljarðar króna og jukust þær um 3,6 prósent á milli ára. Í yfirlýsingu sem send var út í gær segir að leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu hafi vöxtur félagsins verið 6,5 prósent. Hann hafi verið borinn uppi af kjarnastarfsemi Sýnar, sem er internetþjónusta, símaþjónusta, fjölmiðlun og auglýsingasala, en þar jukust tekjurnar um 11,7 prósent milli ára. Þá segir einnig að samhliða vexti kjarnatekna hafi markvisst kostnaðaraðhald skilað sér í verulega bættri afkomu. EBITDAaL hafi numið 842 milljónum og hækkað milli 44,9 prósent á milli ára. Rekstrartap (EBIT) hafi dregist saman um 63 milljónir, úr 141 milljónar tapi í 79 milljónir á ársfjórðungnum. Sjá einnig: Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Handbært fé frá rekstri nam 1.056 m.kr. og jókst um 206 m.kr. milli ára. Auk þess hafa hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga lækkað um rúman milljarð á fjórðungnum. Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar um ársfjórðungsuppgjörið hér. Haft er eftir Herdísi í yfirlýsingunni að uppgjörið staðfesti að hagræðingaraðgerðir séu að skila árangri. Það sjáist á áframhaldandi vexti tekna og því að handbært fé frá rekstri hafi aukist. „Sameining vörumerkja undir merkjum Sýnar, einfaldara vöruframboð og samruni dótturfélaganna inn í móðurfélagið hafa skilað sér í lægri rekstrarkostnaði og bættri framlegð. Launakostnaður lækkar um 6,1% milli ára og endurspeglar bæði fækkun stöðugilda og þá hagræðingu sem náðst hefur með einföldun skipulags. Stöðugildi voru 375 á tímabilinu samanborið við 410 á fyrsta fjórðungi 2025,“ segir Herdís. Hún segir sölu farnetsdreifikerfa til Sendafélagsins, sem lauk á síðasta ári hafa haft jákvæð áhrif á efnahag félagsins á fjórðungnum. „Endurgreiðsla á seljandaláni frá Sendafélaginu að fjárhæð 938 m.kr. styrkti lausafjárstöðu og gerði félaginu kleift að lækka rekstrarlán um 908 m.kr. á fjórðungnum. Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafa þannig lækkað um rúman milljarð frá áramótum.“ Ennfremur segir Herdís að gangi sala á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar til Símans hf. eftir, muni hún styrkja efnahagsreikning félagsins og skapa aukið svigrúm til að efla kjarnarekstur Sýnar til framtíðar. Sjá einnig: Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum „Við fórum inn í árið með traustari grunn, einfaldari rekstur og skýra forgangsröðun um að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu. Samhliða því verður áfram lögð áhersla á að bæta arðsemi í fjarskiptum og fjölmiðlum og að nýta þau tækifæri sem skapast með einfaldara skipulagi.“ Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Uppgjör og ársreikningar Fjarskipti Fjölmiðlar Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira