Eignalaus skúffufyrirtæki skulda Byggðastofnun milljarð 10. ágúst 2010 11:03
Tvö af helstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins, Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. á Ísafirði og Vísir hf. í Grindavík, skulda Byggðastofnun um einn miljarð íslenskra króna í gegnum dótturfélög sín sem eru eignalaus skúffufyrirtæki. Fjallað er um málið á vefsíðunni Skutull.is. Þar segir að fram hefur komið í fréttum að fjögur sjávarútvegsfyrirtæki skulda Byggðastofnun 1,2 milljarða króna vegna lána sem veitt hafa verið með veði í rækjukvóta. Tvö af þessum fyrirtækjum eru einkahlutafélögin Forest Gump og F-420, segir í frétt á Vísi.is. Samkvæmt upplýsingum Skutuls.is skulda þessi fyrirtæki Byggðastofnun hvort um sig nálægt 500 milljónum króna. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að bæði fyrirtækin eru skúffufyrirtæki eða eignarhaldsfélög án sýnilegra eigna. Rækjukvótinn sem sagt er að þau hafi fengið lán út á er ekki hjá þessum félögum, heldur móðurfélögum þeirra, sem eru tvö af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins. Þannig mun Vísir hf. í Grindavík vera eigandi Forest Gump ehf. og Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. eigandi F-420 ehf. í gegnum annað eignarhaldsfélag sem nefnist Skollaborg ehf. Skollaborg ehf. er að öllu leyti í eigu HG hf. Vísir hf. og HG hf. voru bæði skráð fyrir úthafsrækjukvóta á þessu fiskveiðiári, en dótturfyrirtækin ekki. Það er svo aftur staðreynd að hvorki Vísir hf. né HG hf. hafa stundað rækjuveiðar á síðustu árum, heldur notað kvótann til millifærslna eða leigt hann frá sér.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ Viðskipti erlent Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Hótar himinháum áfengistollum á Evrópu Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira