Inntak auglýsinga American Express stendur óhaggað 23. febrúar 2010 17:56
Kreditkort, umboðsaðili American Express, stendur fyllilega við öll efnisatriði tilteknar auglýsingar sem Valitor, umboðsaðili Visa, hefur kvartað yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kreditkorti. Neytendastofa hefur bannað birtingu auglýsinga American Express þar sem borin er saman vildarpunktasöfnun korthafa American Express og VISA. Neytendastofa taldi auglýsinguna brjóta gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu þar sem gefið er í skyn að vildarpunktasöfnun með VISA kortum taki óeðlilega langan tíma borið saman við American Express. „Auglýsingunum var ætlað að varpa ljósi á þann mun sem er á söfnun vildarpunkta á Visa-kortum annars vegar og kortum American Express hins vegar. Það er vissulega vandasamt að koma flóknum skilaboðum um fríðindasöfnun mismunandi kreditkorta á framfæri í stuttum auglýsingum. Ljóst er að skýringarnar hefðu mátt vera nákvæmari í þessum tilteknu auglýsingum. Birtingu þessara auglýsinga hefur nú verið hætt og Kreditkort mun gæta þess framvegis að taka tillit til þessara sjónarmiða," segir í tilkynningunni. Þar segir auk þess að í umhverfi eins og því sem ríki nú á kortamarkaðnum séu úrskurðir Neytendastofu ákaflega mikilvægir til að skýra mörkin í samkeppni. Ekki síst fyrir nýja aðila eins og American Express sem hafai minna svigrúm til auglýsingabirtinga en þeir kortaútgefendur sem fyrir séu á markaðnum. Þá telur Kreditkort rétt að fram komið að Neytendastofa hafi einungis tekið tvö af fimm umkvörtunarefnum Valitors til greina varðandi áðurnefndar samanburðarauglýsingar. Hinum þremur hafi Neytendastofa hafnað. Kreditkortum hafi meðal annars verið fyllilega heimilt að bera saman punktasöfnun á kortum í auglýsingum sínum og einnig hafi fyrirtækinu verið heimilit að nota vörumerki Visa í þessum samanburði. „Eftir stendur að söfnun Vildarpunkta á American Express kortum er hraðari en á nokkru öðru kreditkorti á Íslandi, þ.m.t. á kortum Visa. Þetta má sjá svart á hvítu ef heimasíður þessara tveggja kortafyrirtækja eru bornar saman. Kreditkort hvetur neytendur til að gera ávallt samanburð og fá aðstoð starfsfólks við að sjá hversu miklum fríðindum kortavelta þeirra skilar á ólíkum kortum."
Tengdar fréttir Neytendastofa bannar auglýsingar American Express Neytendastofa hefur bannað birtingu auglýsinga American Express þar sem borin er saman vildarpunktasöfnun korthafa American Express og VISA. 23. febrúar 2010 11:59 Mest lesið „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Viðskipti innlent „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Fanney tekur við af Erni hjá Lex Viðskipti innlent Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Viðskipti innlent Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Samstarf Fleiri fréttir Þórður Már til Faxaflóahafna Fanney tekur við af Erni hjá Lex „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Óli Páll til APRÓ Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Sjá meira
Neytendastofa bannar auglýsingar American Express Neytendastofa hefur bannað birtingu auglýsinga American Express þar sem borin er saman vildarpunktasöfnun korthafa American Express og VISA. 23. febrúar 2010 11:59