Formaður slitastjórnar beggja vegna borðs Sigríður Mogensen skrifar 13. febrúar 2010 18:51
Hlynur Jónsson, formaður slitastjórnar Spron og Frjálsa fjárfestingabankans, situr jafnframt í stjórn félags sem er stærsti kröfuhafi í þrotabú Frjálsa. Sem slitastjóri ákveður hann hvort yfir níutíu milljarða króna krafa félagsins í þrotabúið er samþykkt. Héraðsdómur Reykjavíkur skipaði Hlyn upphaflega sem formann skilanefndar Spron. Skilanefndinni var svo falið af hálfu Fjármálaeftirlitsins að stofna nýtt félag utan um eignir þrotabús Spron, en þær voru allar fluttar þar inn. Það félag heitir Drómi og má segja að það sé umsýslufélag þrotabús Spron. Skilanefndin, með Hlyn í fararbroddi, skipaði síðan stjórn Dróma og tók Hlynur sæti sem formaður stjórnar félagsins. Héraðsdómur skipaði seinna Hlyn sem formann slitastjórnar Spron.Í raun breyttist skilanefndin í slitastjórn. Hlynur Jónsson var einnig skipaður formaður slitastjórnar Frjálsa, sem var dótturfélag Spron. Drómi, þ.e.a.s. þrotabú Spron, er stærsti kröfuhafi Frjálsa fjárfestingabankans, með 99% af heildarkröfum. Hlynur Jónsson, fyrir hönd Dróma, gerir þannig 92 milljarða kröfu í þrotabú Frjálsa Fjárfestingabankans. Sem formaður slitastjórnar Frjálsa tekur hann svo sjálfur ákvörðun um að samþykkja kröfuna. Einn kröfuhafa Frjálsa hefur kært þessa ráðstöfun - enda kunni það að brjóta í bága við lög um gjaldþrotaskipti að sömu aðilar sitji beggja vegna borðs. Hlynur Jónsson, staðfesti í samtali við fréttastofu að málum væri svona háttað og upplýsti um fyrirkomulagið. Hann baðst þó undan viðtali vegna málsins.
Mest lesið „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Viðskipti innlent Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Neytendur Fanney tekur við af Erni hjá Lex Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Þórður Már til Faxaflóahafna Viðskipti innlent Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Viðskipti innlent Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Viðskipti innlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þórður Már til Faxaflóahafna Fanney tekur við af Erni hjá Lex „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Óli Páll til APRÓ Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Sjá meira