Gylfi fékk ekki að spreyta sig í tapi á móti Bayern Munchen Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2010 16:54 Ralf Rangnick, þjálfari Hoffenheim, vildi ekki nota Gylfa í kvöld. Mynd/Bongarts
Gylfi Þór Sigurðsson fékk ekki að spila með Hoffenheim í kvöld þegar liðið tapaði 1-2 á heimavelli á móti Þýskalandsmeisturunum í Bayern Munchen. Sigurmark Bayern kom í uppbótartíma. Gylfi átti frábæra innkomu um síðustu helgi þegar hann skoraði beint úr aukspyrnu nokkrum sekúndum eftir að hafa komið inn á sem varamaður en þrátt fyrir það voru ekki not fyrir hann í leiknum í kvöld. Hoffenheim fékk draumabyrjun í leiknum þegar Vedad Ibisevic kom þeim í 1-0 á fyrstu mínútu leiksins. Bayern var meira með boltann það sem eftir lifði hálfleiksins en Hoffenheim fékk engu að síður tvö góð færi til viðbótar til þess að bæta við mörkum. Thomas Müller jafnaði leikinn á 62. mínútu eftir undirbúning Franck Ribery en þetta var fyrsta deildarmark Bayern í 330 mínútur. Ribery fór meiddur af velli í kjölfarið. Það var síðan miðvörðurinn Daniel van Buyten sem tryggði Bayern 2-1 sigur með marki í uppbótartíma eftir skallasendingu frá Ivica Olic og fyrirgjöf frá Hamit Altintop. Bayern Munchen er í 7. sæti deildarinnar með 8 stig út úr fyrstu 5 leikjum sínum en Hoffenheim er í 2. sætinu með 10 stig.
Þýski boltinn Mest lesið Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira