Erlent

Eldar loguðu um alla borg

Bangkok brennur Forsætisráðherra Taílands sagðist sannfærður um að íkveikjurnar verði hægt að stöðva.nordicphotos/AFP
Bangkok brennur Forsætisráðherra Taílands sagðist sannfærður um að íkveikjurnar verði hægt að stöðva.nordicphotos/AFP

Miklar óeirðir brutust út í Bangkok í gær eftir að herinn hafði knúið leiðtoga mótmælenda til uppgjafar. Eldar loguðu víða í borginni og átökin kostuðu að minnsta kosti sex manns lífið, þar á meðal ítalska ljósmyndarann Fabio Polenghi.

Abhisit Vejjajiva forsætisráðherra lýsti yfir útgöngubanni í allri borginni, sem átti að gilda frá átta í gærkvöld til klukkan sex í morgun að staðartíma. Fimmtán ár eru síðan útgöngubanni var síðast lýst yfir í Bangkok.

Kveikt var í nærri sautján byggingum, þar á meðal kauphöll borgarinnar, nokkrum bönkum, höfuðstöðvum rafveitunnar og verslunarmiðstöðinni Central World, sem var ein sú stærsta í Suðaustur-Asíu. Einnig brann kvikmyndahús til grunna og eitthvað var um gripdeildir í verslunum.

Uppþotin hófust eftir að herinn hafði lagt til atlögu gegn þúsundum rauðklæddra mótmælenda, sem höfðu lagt undir sig nokkrar götur í miðborginni og hafst þar við í nærri tvo mánuði.

Herinn réðst til atlögu snemma í gærmorgun og beitti mótmælendur fullri hörku, sem varð til þess að tveir helstu leiðtogar þeirra lýstu yfir uppgjöf síðdegis og gáfu sig á vald lögreglunni. Þeir sögðust með þessu vilja koma í veg fyrir meira mannfall, en átökin undanfarnar vikur hafa kostað um fjörutíu manns lífið.

Abhisit forsætisráðherra reyndi að bera sig vel í sjónvarpsávarpi og fullyrti að stjórnin muni ná tökum á ástandinu.

Mótmælendurnir krefjast þess að stjórnin segi af sér og boðað verði til þingkosninga sem allra fyrst. Mótmælendur segja stjórnina sitja í skjóli valdaráns hersins haustið 2006 og sé því ekki lögmæt.

Rauðklæddu mótmælendurnir eru margir hverjir stuðningsmenn Thaksins Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra, sem hrakinn var frá völdum í valdaráninu. Aðrir eru fyrst og fremst að krefjast þess að lýðræði verði haft í heiðri.

Óeirðir breiddust einnig út til norður- og norðausturhluta landsins, þar sem andstaðan við stjórn Abhisits er sterk. Stjórnin er sökuð um að hygla auðugu valdaklíkunni sem hefur stjórnað landinu meira og minna áratugum saman.

gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×