Úrslit kvöldsins í Pepsi-deild kvenna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júní 2010 21:14 Valskonur fögnuðu tíu sinnum í kvöld. Mynd/Daníel
Eftir tvö jafntefli í röð sýndu Valskonur mátt sinn í 10-0 risasigri á Aftureldingu á Vodafone-vellinum í kvöld. Blikastúlkur komust aftur upp í annað sætið eftir 3-1 sigur á botnliði FH. Valur er áfram með þriggja stiga forskot á toppnum. Lið Aftureldingar var búið að halda hreinu í 316 mínútur í deildinni en Valskonur voru í miklum ham og komnar í 6-0 eftir aðeins 36 mínútna leik. Mörkin urðu á endanum tíu þar sem þær Kristín Ýr Bjarnadóttir, Katrín Jónsdóttir og Björk Gunnarsdóttir skoruðu allar tvennu. Breiðablik lenti í vandræðum á móti botnliði FH á heimavelli og um tíma laiet út fyrir að liðið væri að gera þriðja jafntefli í röð. Blikar skoruðu hinsvegar tvö mörkin í lokin og tóku annað sætið aftur af Þór/KA. Sonja Björk Jóhannsdóttir tryggði KR 1-1 jafntefli á móti Fylki í Árbæ þegar hún skoraði á þriðju mínútu í uppbótartíma en Fylkir var með forustuna í 89 mínútur eftir að Arna Sigurðardóttir kom liðinu í 1-0 í upphafi leiks. Norður-írska landsliðskonan Rachel Furness hitaði upp fyrir landsleikinn á móti Íslandi á laugardaginn með því að skora sigurmark Grindavíkur á móti Haukum á Ásvöllum. Upplýsingar um markaskorar eru fengnar frá netsíðunni fótbolti.net.Úrslit og markaskorarar í Pepsi-deild kvenna í kvöld:Valur-Afturelding 10-0 1-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir (2.), 2-0 Rakel Logadóttir (10.), 3-0 Katrín Jónsdóttir (19.), 4-0 Hallbera Guðný Gísladóttir (22.), 5-0 Katrín Jónsdóttir (28.), 6-0 Thelma Björk Einarsdóttir (36.), 7-0 Björk Gunnarsdóttir (54.), 8-0 Björk Gunnarsdóttir (58.), 9-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir (62.), 10-0 Dagný Brynjarsdóttir (75.)Breiðablik-FH 3-1 1-0 Hlín Gunnlaugsdóttir (19.), 1-1 Margrét Sveinsdóttir (70.), 2-1 Sara Björk Gunnarsdóttir (86.), 3-1 Ásta Eir Árnadóttir (88.)Fylkir-KR 1-1 1-0 Arna Sigurðardóttir (4.), 1-1 Sonja Björk Jóhannsdóttir (90.+3).Haukar-Grindavík 0-1 0-1 Rachel Furness (34.)
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings