,,Mikið í gangi í hausnum núna” Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 2. október 2026 21:42 Arna Sif Ásgrímsdóttir í leik með Þór/KA vísir/Guðmundur Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA, sagðist hafa fundið fyrir miklum létti eftir tveggja marka sigur á Víkingi sem tryggði liðinu áframhaldandi veru í Bestu deild kvenna. Hún var stolt af viðbrögðum liðsins eftir tap í síðustu umferð en sagði vonbrigði með tímabilið einnig hafa verið ofarlega í huga. „
Þetta eru einhvern veginn allar heimsins tilfinningar. Í fyrsta lagi er ég ótrúlega stolt af liðinu, hvernig það kom inn í leikinn og svaraði fyrir síðasta. Þetta er búið að vera svolítið þungt á manni og engin draumastaða að vera í.“ Þrátt fyrir gleðina yfir að hafa tryggt sætið hefði hún viljað sjá liðið í annarri stöðu. „Svo eru bara vonbrigði með tímabilið, hvernig það spilaðist. Maður er harður við sjálfan sig, hefði viljað gera meira eða hjálpa meira. Það er mikið í gangi í hausnum núna.“ Mikið var undir í Víkinni og fjölmenni í stúkunni. Arna Sif sagði þó hafa verið merkilega létt að spila leikinn. Liðið hefði náð að einbeita sér að eigin verkefni. „Við vorum mjög sammála um hvað við værum að fara að gera, vorum mjög einbeittar, fannst mér.“ Hún viðurkenndi þó að spennan hefði verið til staðar. „Ég ætla samt ekkert að ljúga, auðvitað voru einhver fiðrildi í maganum. En strax í upphitun fannst mér bara kveikt á okkur. Við vorum on it og unnum verðskuldað.“ Arna Sif sagði það hafa gríðarlega mikla þýðingu fyrir bæði leikmenn og félagið að halda sæti í deildinni. Hún hefði haft áhyggjur af því hvað fall gæti haft í för með sér. „Ég persónulega hafði áhyggjur af því hvað yrði um Þór/KA ef félagið myndi falla. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Akureyri að vera með Þór/KA, gott efstu deildar lið. Við erum með mikið af mjög efnilegum stelpum. Þetta skiptir mig og allar miklu máli.“ Nú þyrfti liðið að nýta reynslu sumarsins til að gera betur. „Við lærðum ógeðslega mikið í sumar. Við hvílum okkur núna og tökum það með okkur inn í næsta tímabil og gerum betur.“ Spurð hvað liðið gæti helst lært af tímabilinu nefndi Arna Sif ábyrgð leikmanna. Hún sagðist enn vera að læra þótt hún væri orðin 34 ára og komin á síðustu metra ferilsins. „Við þurfum að taka meiri ábyrgð. Það er ekki alltaf hægt að benda á þjálfarann eða þennan eða hinn. Við þurfum að taka ábyrgð á okkur sjálfum.“ Hún sagði liðið ekki hafa brugðist nægilega vel við erfiðri byrjun á mótinu. „Við byrjuðum illa, þá urðum við bara svolítið litlar og barnalegar. Við fórum einhvern veginn að kenna hinum og þessum um og vorum kannski lengi að líta inn á við.“ Þegar leikmenn hefðu farið að horfa í eigin barm hefði liðið tekið skref fram á við, þótt frammistaðan hefði áfram verið kaflaskipt. Arna Sif taldi einnig að liðið hefði þurft að vinna betur í ákveðnum þáttum yfir veturinn og finna skýrari sameiginlega stefnu með nýjum þjálfara og mörgum nýjum leikmönnum. „Við þurfum að vera sammála um hvert við erum að fara, hvernig við erum að spila og hvað hentar mannskapnum. Þannig að já, bara hellings lærdómur eins og heyrist.“
Íslenski boltinn Þór Akureyri KA Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Sjá meira