Örlög Steve McClaren ráðin - Wolfsburg steinlá í bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2010 20:48 Steve McClaren. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Örlög Steve McClaren knattspyrnustjóra þýska fótboltaliðsins, Wolfsburg, réðustu væntanlega í kvöld þegar liðið tapaði 1-3 á heimavelli á móti b-deildarliðinu Energie Cottbus í 16 liða úrslitum þýska bikarsins. Cottbus komst í 3-0 í fyrri hálfleik en það dugði Wolfsburg ekki að vera með boltann 70 prósent leiktímans í seinni hálfleiknum því þeir náðu aðeins að skora eitt mark. Wolfsburg hefur nú spilað átta leiki í röð án þess að sigra og er komið niður í 13. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar. Framundan er fjögurra vikna vetrarfrí og forráðamenn Wolfsburg eru líklegir til að nýta sér það til þess að finna nýjan þjálfara. Wolfsburg varð þýskur meistari undir stjórn Felix Magath 2008-2009 en endaði í 8. sæti í fyrra. Liðið rak eftirmann Felix Magath, Armin Veh, á svipuðum tíma í fyrra en liðið varð þá í 10. sæti í deildinni eftir fyrri hluta tímabislins. Steve McClaren er fyrrum þjálfari enska landsliðsins en þegar hann tók við Wolfsburg-liðinu í haust varð hann fyrsti enski þjálfarinn í þýsku úrvalsdeildinni. McClaren gerði Twente að hollenskum meisturum á síðasta tíambili en Wolfsburg hefur aðeins unnið 4 af 17 deildarleikjum sínum undir hans stjórn.
Þýski boltinn Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Sjá meira