Greining: Stýrivextir lækka um 0,5-1,0 prósentustig 23. febrúar 2010 10:22
Greining Íslandsbanka reiknar með því að peningastefnunefnd Seðlabankans lækki vexti bankans um 0,5-1,0 prósentustig á næsta fundi sínum. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabanka Íslands er 17. mars næstkomandi. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í síðustu fundargerð Peningastefnunefndarinnar og yfirlýsingu nefndarinnar eftir fundinn segir að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðni eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Gengi krónunnar hefur haldist nokkuð stöðugt frá síðustu vaxtaákvörðun bankans 27. janúar síðastliðinn. Reiknar greiningin með því að krónan haldi sjó eða styrkist fram að vaxtaákvörðun. „Verðbólgan mun einnig að okkar mati vera í takti við væntingar Seðlabankamanna á vaxtaákvörðunardegi. Reiknum við með því að verðbólgan á fyrsta ársfjórðungi verði 7,2% sem er mjög viðlíka nýjustu spá Seðlabankans. Innan þeirrar spár eru væntingar okkar um að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,8% í næstu mælingu sem birt verður 24. febrúar. Einnig teljum við að verðbólguhorfur séu góðar," segir í Morgunkorninu. Stærsti óvissuþáttur spárinnar er Icesave deilan milli Breta, Hollendinga og Íslendinga. Byggir spáin á því að samkomulag verði komið á vaxtaákvörðunardegi en á síðasta fundi peningastefnunefndarinnar kom fram að á meðan óvissa um aðgang Íslands að erlendum lánamörkuðum ríkir er svigrúm nefndarinnar til frekari lækkunar vaxta takmarkað. Verði samkomulag ekki komið eru því talsverðar líkur á því að peningastefnunefndin haldi stýrivöxtum óbreyttum. Greiningin spáir því að Seðlabankinn muni halda áfram í vaxtalækkunum þegar líður á árið. „Spáum við því að bankinn verði kominn með stýrivexti sína í 6,0-6,5% í lok þessa árs. Reiknum við með því að bankinn haldi núverandi bili óbreyttu á milli vaxta á viðskiptareikningum innlánsstofnana og vaxta á veðlánum bankans en þetta bil er 1,5 prósentustig," segir í Morgunkorninu. „Meðal forsenda í spá okkar er hröð hjöðnun verðbólgunnar á árinu og væntingar um að verðbólgan, án skattaáhrifa, verði komin í 2,5% markmið bankans í lok þessa árs. Er verðbólguspá bankans viðlíka spá okkar sem hljóðar upp á 3,0% verðbólgu í árslok með skattaáhrifum. Vaxandi slaki í hagkerfinu, litlar launahækkanir, stöðugt eða sterkara gengi krónu og frekari lækkun húsnæðisverðs eru meðal þeirra þátta sem munu tryggja lága verðbólgu á árinu. Gengi krónunnar ætti að okkar mati að geta haldist stöðugt eða styrkist á árinu. Líklegt er að eftir aðra endurskoðun efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda sem ætti að eiga sér stað þegar Icesave samkomulagið er í höfn muni vera hugað að næsta skrefi við afnám gjaldeyrishafta. Byggjum við á þeirri forsendu að samkomulag náist fyrir næsta vaxtaákvörðunarfund en um það er líkt og áður sagði umtalsverð óvissa. Tefjist þetta samkomulag mun það tefja vaxtalækkunarferlið. Í næsta skrefi við afnám gjaldeyrishafta er ætlunin að afnema höft á þolinmóðasta erlenda fjármagnið sem hér er, t.d. það sem bundið er í lengstu ríkisbréfunum og íbúðabréfunum. Varla verður farið út í þetta nema tryggt sé að gengi krónunnar lækki ekki í kjölfarið. Hins vegar má búast við að áhersla Seðlabankans á að halda áhættuleiðréttum vaxtamun við útlönd háum aukist. Þetta mun draga úr vilja bankans til að lækka stýrivexti sína á árinu. M.v. spá okkar um 6,0-6,5% stýrivexti í lok árs ætti munur innlendra og erlendra skammtímavaxta að vera kominn í 4,5-5,0 prósentustig í lok árs. Vaxtamunurinn er nú u.þ.b. 7,5% miðað við innlenda og erlenda millibankavexti ."
Mest lesið „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Viðskipti innlent „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Fanney tekur við af Erni hjá Lex Viðskipti innlent Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Viðskipti innlent Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Samstarf Fleiri fréttir Þórður Már til Faxaflóahafna Fanney tekur við af Erni hjá Lex „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Óli Páll til APRÓ Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Sjá meira