Breyttir tímar í argentínskum körfubolta - Litháen í undanúrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. september 2010 09:00 Litháar lokuðu nær alveg á Luis Scola (til vinstri) í leiknum. Mynd/AP
Litháen komst í undanúrslit á HM í körfubolta í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar með því að vinna 104-85 sigur á Argentínu í átta liða úrslitum á HM í Tyrklandi í gær. Litháen hefur keppt undir sínu nafni frá og með 1994-keppninni og hafði best náð 7. sæti. Litháar mættu sjóðheitir til leiks og hittu úr 9 af fyrstu 11 þriggja stiga skotum sínum. Það var sama hver skaut það fór allt ofan í. Simas Jasaitis skoraði mest 16 stig fyrir Litháen en sjö leikmenn skoruðu tólf stig eða meira í liðinu. Carlos Delfino skoraði 25 stig fyrir Argentínu en Litháar héldu stigahæsta leikmanni mótsins Luis Scola í aðeins 13 stigum og 31 prósent skotnýtingu. Scola hafði brotið 30 stiga múrinn í fimm leikjum í röð. Þetta tap argentínska liðsins þýðir að í fyrsta sinn í heilan áratug nær Argentína ekki að vera í hópi fjögurra efstu á einu af þremur stórum mótunum: Ólympíuleikum, Heimsmeistarakeppni eða Ameríkukeppninni. Það má því segja að nú séu breyttir tímar í argentínskum körfubolta. Litháar mæta Bandaríkjunum í undanúrslitunum á morgun en í hinum leiknum mætast heimamenn í Tyrklandi og Serbíu sem sló einmitt út heimsmeistara Spánverja í átta liða úrslitum.
Körfubolti Mest lesið Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Körfubolti „Erum ennþá með þetta í okkar höndum“ Fótbolti „Menn eru að henda sér fyrir bolta og hlaupa úr sér lungun“ Fótbolti „Þegar þeir misstíga sig þá misstígum við okkur líka“ Fótbolti Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking Íslenski boltinn „Þú ert skilgreindur af nútíðinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Frábær leikur Martins dugði ekki Völdu ekki Bronny af virðingu við LeBron „Hann gerir einhvern veginn alla í kringum sig betri“ Súrt tap í framlengdum leik hjá Tryggva Snæ og félögum Helena tekin inn í heiðurshöll TCU Telur að Thomas sé betri en Basile Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Njarðvík leikur í IceMar-höllinni „Verðum að vera harðari“ „Borgarnes-Bjarni grjótharður í þessum leik“ Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Allir nema einn völdu Clark sem nýliða ársins Uppgjörið: Þór Þ. - Njarðvík 93-90 | Þór vann græna slaginn „Ennisbandið var slegið af honum“ Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 101-108 | Hasar og læti í framlengdum leik í Forsetahöllinni Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur Uppgjörið: Haukar - Höttur 80-108 | Ótrúlega öruggur sigur Hattar í Hafnarfirði Martin mátti þola tap í fyrsta leik EuroLeague Finnur Freyr í bann fyrir lætin í Keflavík Teitur í Ljónagryfjunni: „Eitthvað við húsið og söguna sem náði því besta úr mönnum“ Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi „Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“ Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 71-64 | Baráttuglaðar Stjörnustúlkur lögðu Íslandsmeistarana Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ GAZið: „Ætla að reyna aðeins meira á mig“ Haukar og Valur byrja Bónus deildina á sigrum Sjá meira