Skoðun

Varnir á netinu

Ólafur Stephensen skrifar
Fréttablaðið hefur undanfarna tíu daga fjallað um varnar­leysi Íslands gagnvart tölvuárásum. Slíkar árásir eru taldar vaxandi ógn við öryggi ríkja og geta verið af margvíslegum toga. Tölvuþrjótar geta reynt að ráðast á netkerfi einstakra fyrirtækja eða jafnvel heilu ríkjanna og hefur glæpastarfsemi á netinu vaxið gríðarlega. Talið er að hryðjuverkamenn geti valdið miklum skaða í netkerfum og er rökstuddur grunur um að þjóðríki séu byrjuð að beita netárásum sem vopni gegn óvinum. Þannig urðu netkerfi í Eistlandi fyrir alvarlegum árásum í kjölfar deilna við Rússland árið 2007 og Georgía varð fyrir heiftar­legum net­árásum samhliða innrás Rússa í landið ári síðar. Vitað er að kínverski herinn hefur lagt mikið fé til þróunar nethernaðar.

Netkerfi eru lífsnauðsynleg flestum þróuðum samfélögum. Truflun á netsamskiptum getur núorðið valdið gífurlegum usla, fjárhagstjóni og jafnvel slysum og dauðsföllum. Flest ríki leggja því vaxandi áherzlu á netvarnir. Varnir gegn tölvuárásum af margvíslegum toga eru þannig orðnar talsverður þáttur í starfi Atlantshafsbandalagsins (NATO). Eistum hefur verið falin forysta á því sviði innan bandalagsins, enda eru þeir reynslunni ríkari.

Undirbúningur netvarna var hafinn hér á landi bæði á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar og Varnarmálastofnunar en stöðvaðist vegna fjárskorts, eins og Fréttablaðið hefur fjallað um. Póst- og fjarskiptastofnun hefur árum saman mælzt til þess að sérstöku viðbragðsteymi gegn netárásum yrði komið á fót hér á landi. Undir það hefur verið tekið í samþykktum Alþingis og var hópur sem vann hættumat fyrir Ísland á vegum utanríkisráðuneytisins sama sinnis.

Lítið hefur hins vegar gerzt í málinu fyrr en í síðustu viku, eftir að Fréttablaðið fjallaði um það. Að tillögu Ögmundar Jónassonar, dóms- og mannréttindamálaráðherra og samgönguráðherra, hefur ríkisstjórnin nú samþykkt að koma á fót öryggis- og viðbragðsteymi til að vinna gegn og bregðast við netárásum. Gert er ráð fyrir að á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar verði tveir til þrír sérfræðingar í fullu starfi við þetta verkefni.

Þetta eru skjót viðbrögð hjá Ögmundi, en verkefnið er líka þess efnis að því verður að sinna. Kostnaðurinn við varnirnar er miklu minni en það tjón sem getur orðið ef Ísland er óviðbúið tölvuárás.

„Það er farið að skilgreina öryggi í netheimum sem grundvallarþátt í öryggi samfélaga. Þetta er eiginlega sjálfsagður hlutur að reyna að hafa í lagi, eftir því sem frekast er kostur," sagði Ögmundur í samtali við Fréttablaðið á laugardag. Það er rétt hjá Ögmundi og jákvætt hvað ráðherrann er orðinn áhugasamur um landvarnir - að minnsta kosti á netinu.






Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×