Skoðun

Mamma ég lofa

Lára G. Sigurðardóttir skrifar

„Mamma, ég lofa að nota þetta ekki aftur,“ sagði sonur minn fullur iðrunar þegar ég hafði fyrir tilviljun fundið nikótínpúða inni í herberginu hans. Hann var fimmtán ára.

Ég hélt ræðu. Langa ræðu. Útskýrði áhrif nikótíns, hættuna á fíkn og hvers vegna það væri sérstaklega varasamt að byrja svona ungur. Hann hlustaði, lofaði öllu fögru og málið virtist afgreitt.

Þangað til leikurinn endurtók sig.

Þá bætti ég í fræðsluna. Fræðslumyndbönd, rannsóknir, samtöl um áhrif nikótíns á líkama og heila. Að fyrra bragði sagðist hann ekki hafa nokkurn áhuga á nikótíni aftur.

Nokkrum mánuðum síðar var hann farinn að fikta við rafsígarettur.

Ég segi þessa sögu vegna þess að þingmaður Viðreisnar skrifaði nýlega grein undir fyrirsögninni „Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna“. Þar er mikil áhersla lögð á fræðslu, upplýsingalæsi og að valdefla ungmenni til að taka upplýstar ákvarðanir.

Nú hef ég sjálf lesið mér til og frætt almenning um nikótín og áhrif þess í mörg ár. Gaf meðal annars út fræðslumyndbönd um nikótín fyrir ungmenni. Ég ætti því að vera nokkuð fær um að fræða mitt eigið barn. Samt skilaði þetta fræðsluátak hjá mér ekki tilsettum árangri.

Ef þekking ein nægði til að breyta hegðun væri lífið einfaldara. Við myndum öll borða hollt, ekki neyta áfengis, hreyfa okkur og sofa nóg. Við fullorðna fólkið eigum mörg erfitt með að gera það sem við vitum að er okkur fyrir bestu. Hvers vegna ættum við að ætla unglingum að eiga auðveldara með það? Ekki síst í ljósi þess að heilakerfi sem styðja sjálfstjórn og yfirvegaða ákvarðanatöku eru enn að þroskast á unglingsárum og allt fram á fullorðinsár.

Ungmenni taka heldur ekki ákvarðanir í tómarúmi. Vinir, samfélagsmiðlar, áhrifavaldar, sýnileiki nikótíns, verð, aðgengi, umbúðir og bragðefni hafa áhrif. Við þetta bætist að nikótín er gríðarlega ávanabindandi fyrir ómótaðan heila.

Þess vegna er villandi að stilla fræðslu upp sem andsvari við boð og bönn. Við fræðum ungmenni um aksturshraða en setjum samt hraðatakmarkanir með ströngum refsingum. Við fræðum um skaðsemi reykinga en bönnum samt reykingar í öllum almannarýmum.

Þetta kallast lýðheilsuaðgerðir. Og margar þeirra skila góðum árangri, þótt þær fari illa saman við óskhyggju sumra þingmanna um hvernig mannsheilinn ætti að virka.

Sama á að gilda um nikótínvörur. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur hvatt stjórnvöld til að vernda ungmenni með því að draga úr aðdráttarafli nikótínvara. Það er m.a. gert með því að banna bragðefni, takmarka markaðssetningu, draga úr aðgengi og beita verðstýringu.

Myntu- og mangóbragð er ekki þarna fyrir tilviljum. Stundum er gert lítið úr því að takmarka bragðefni og litskrúðugar umbúðir. Hvers vegna eru nikótínvörur yfirleitt með mangó-, myntu-, berja-, og tyggjóbragði? Það er morgunljóst að þær verða ekki hollari með þessari viðbót, en þær verða girnilegri.

Þá vaknar önnur spurning: Hvers frelsi erum við að verja? Frelsi fimmtán ára barnsins til að ánetjast nikótíni og skaða eigin heilsu, eða frelsi til þess að alast upp án nikótínfíknar? Er Viðreisnarmönnum e.t.v. umhugað um frelsi fyrirtækja til að gera ávanabindandi vöru eins aðlaðandi og mögulegt er?

Sem móðir mun ég halda áfram að gera mitt besta til að fræða börnin mín, en mér þykja stjórnvöld geta gert betur en að treysta því að ræða mín við eldhúsborðið geri barnið afhuga nikótíni. Dæmið í upphafi hefur ekki einungis sýnt að slík forvörn hefur takmarkað gildi, heldur sýna rannsóknir að þrátt fyrir að fræðsla sé mikilvæg, þá dugir hún ekki til að halda ungmennum frá nikótíni.

Foreldrar eiga heldur ekki einir að þurfa að keppa við samfélagsmiðla, áhrifavalda, jafningja barna sinna, bragðefni, litrík vörumerki og söluaðila sem hafa fjárhagslegan ávinning af því að eignast nýja viðskiptavini til langs tíma. Það er góður bisness, en léleg lýðheilsa.

Lýðheilsa snýst ekki um að banna allt, heldur snýst hún um að þora að beita þeim aðgerðum sem rannsóknir sýna að virka. Við bönnum til dæmis ekki bíla, en setjum lög til að vernda bæði ökumenn sem og aðra í umferðinni. Við þurfum ekki að banna nikótín en getum sett lög sem við vitum að fælir ungmenni frá vörunni, t.d. að banna bragðefni, gera umbúðir einsleitar, hækka verð og fækka útsölustöðum. Best væri að færa nikótínpúða og rafsígarettur undir hatt tóbaksvarnarlaga. Nikótín verður ekki minna ávanabindandi þótt það komi ekki lengur í formi sígarettu, enda er nikótín upprunnið úr tóbaksplöntunni.

Í 5. grein siðareglna Alþingismanna segir að þeir þurfi að "taka ákvarðanir í almannaþágu". Þeir eiga því ekki að setja hagsmuni þeirra sem selja þessa fíknivöru ofar hagsmunum ungmenna og framtíðarkynslóða. Þingmenn eiga að sýna ábyrgð í verki og hjálpa okkur foreldrunum að vernda börnin okkar gegn hinu útbreidda fíkni- og eiturefni sem með lymskulegum aðgerðum söluaðila hefur komist í tísku, líkt og sígarettur um miðja síðustu öld.

Ég geri mitt sem foreldri. Þingmenn þurfa að gera sitt.

Höfundur er  læknir og doktor í lýðheilsuvísinum, en fyrst og fremst móðir




Skoðun

Sjá meira


×