Royal Greenland kaupir verksmiðju af Icelandic Seafood 22. mars 2010 12:28
Grænlenski útgerðar og fiskvinnslurisinn Royal Greenland (RG) hefur fest kaup á kavíarverksmiðjunni Westfalia-Strentz Gmbh í Cuxhaven af Icelandic Seafood. RG hefur séð verksmiðjunni fyrir grásleppuhrognum í fjölda ára en mun nú sjálft annast allan ferilinn frá veiðum til vinnslu og sölu kavíars að því er segir á vefsíðu RG.Með í kaupum RG á Westfalia-Strentz fylgja allar eigur verksmiðjunnar ásamt húsnæði og vélabúnaði. Allir starfsmenn verksmiðjunnar halda vinnu sinni en verksmiðjan er staðsett við hafnarbakkann í Cuxhaven í Þýskalandi.Flemming Kundsen forstjóri RG er mjög ánægður með kaupin að því er segir á vefsíðunni. Fyrir utan að ráða nú yfir öllu ferlinu í veiðum og vinnslu grásleppuhrogna segir Kundsen að tæknibúnaður verksmiðjunnar sé sá besti í heimi. Þar að auki fái þeir í sína þjónustu allt starfsfólk Westfalia-Strentz sem búi yfir mikilli þekkingu og reynslu í framleiðslu á kavíar.
Mest lesið Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira