Gjaldþrota Magnús skal greiða einn og hálfan milljarð 28. janúar 2010 12:28 Magnús Þorsteinsson er búsesttur í Rússlandi.
Athafnamaðurinn Magnús Þorsteinsson, sem nú er búsettur í Rússlandi, var í morgun dæmdur til þess að greiða einn og hálfan milljarð til Straums Fjárfestingabanka vegna láns frá bankanum til eignarhaldsfélagsins BOM ehf. Málið snýst um lán sem nam rúmlega milljarð króna og var veitt árið 2005 til eignarhaldsfélagins til kaupa á hlutabréfum í Icelandic Group með veð í bréfunum sjálfum. Árið 2006 var krafist þess að Magnús skyldi gangast undir sjálfsábyrgð á láninu þar sem veð þóttu ekki nógu trygg. Sú ábyrgð nam rétt rúmlega 900 milljónum króna. Árið 2008 var svo gengið á sjálfsábyrgð Þorsteins þar sem veð í bréfunum voru verðlaus. Sjálfur heldur Magnús því fram að um málamyndagjörning hafi verið að ræða og hann hafi verið fullvissaður um að ekki yrði gengið að honum ef illa færi. Straumur fór í gjaldþrotamál við Magnús á síðasta ári með þeim afleiðingum að hann var úrskurðaður gjaldþrota. Þá vakti athygli, og Vísir greindi fyrst frá, að Magnús færði lögheimili sitt til Rússlands stuttu áður en dómsmálið var dómtekið. Nú tapaði Magnús í Héraðsdómi norðurlands eystri, og skal greiða einn og hálfan milljarð vegna lánsins. Þess má geta að viðskipti Magnúsar voru samofin viðskiptum Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem var þá stjórnarformaður Straums, bankans sem nú fær 1,5 milljarð frá Magnúsi. Þá sat Magnús í stjórn Eimskipa auk þess sem hann átti hlut í Samson ehf. sem var aðaleigandi Landsbankans fyrir hrun ásamt feðgunum Björgólfi og Björgólfi.
Mest lesið Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Neytendur „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Viðskipti innlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Viðskipti erlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þórður Már til Faxaflóahafna Fanney tekur við af Erni hjá Lex „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Óli Páll til APRÓ Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Sjá meira