Einblínir á sushi-markaðinn 27. júlí 2010 06:00 Kali Tuna, dótturfélag Atlantis Group, hefur selt um tíu þúsund tonn af bláuggatúnfiski til sushi-gerðar í Japan undanfarin ár.Mynd/Atlantis Group
Dótturfélag Atlantis Group, félags í íslenskri eigu, er orðið langstærsta fyrirtækið á sviði túnfiskseldi í heiminum eftir sameiningu við mexíkóskt eldisfyrirtæki. Fyrirtækið framleiðir nú 20 til 30 prósent af öllum bláuggatúnfiski sem alinn er í kvíum í heiminum. „Ég held við getum verið tiltölulega ánægðir með þetta, með þessum kaupum ríflega tvöföldum við starfsemina hjá okkur,“ segir Óli Valur Steindórsson, forstjóri Atlantis Group. Hann verður jafnframt forstjóri sameinaðs dótturfélags, sem fær nafnið Umami Sustainable Seafood. Kali Tuna, dótturfélag Atlantis Group, hefur stundað túnfiskseldi við Króatíu undanfarin ár. Fyrirtækið sameinast nú Baja Aquafarms, sem ræktar túnfisk undan ströndum Mexíkós. Óli Valur segir allan túnfisk sem alinn hafi verið hingað til hafa verið seldan til Japans, þar sem hann hafi verið notaður hrár til sushi-gerðar. Atlantis stefni á að komast inn á sushi-markaðinn í Bandaríkjunum, og þá skipti miklu að framleiða nærri Bandaríkjunun. Fyrirtækið ætli að einblína að mestu á framleiðslu á túnfiski fyrir sushi-gerð, fiskurinn sé margfalt betri í sushi en á grillinu. „Þegar maður er vanur silkinu vill maður ekki ullina,“ segir Óli Valur. Kaupsamningurinn hljóðar upp á 28 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir um 3,4 milljörðum króna á gengi gærdagsins. - bj
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ Viðskipti erlent Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Hótar himinháum áfengistollum á Evrópu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira