Tekjur ríkisins meiri en búist var við 19. ágúst 2010 06:00 Arnarhvoll Fjármálaráðuneytið birti greiðsluuppgjör ríkissjóðs í gær. Fréttablaðið/vilhelm
Handbært fé frá rekstri ríkisins var neikvætt um 36,5 milljarða króna fyrstu sex mánuði ársins. Tekjur voru 27,7 milljörðum meiri en á sama tímabili í fyrra og voru 16,4 milljörðum meiri en áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir. Gjöld voru 3,1 milljarði meiri en í fyrra. Innheimtar tekjur ríkissjóðs á tímabilinu námu 232,5 milljörðum króna sem var 16,4 milljörðum meira en áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir. Það skýrist af bókfærðum tekjum vegna sölu sendiherrabústaðar í London og samkomulags um ráðstöfun eigna Avens B.V. í Lúxemborg. Áætlun fjárlaga gerði ekki ráð fyrir þessum ráðstöfunum. Hagnaður ríkissjóðs af samningnum vegna Avens var áætlaður 17,5 milljarðar króna og söluhagnaður sendiherrabústaðarins var 1,7 milljarðar króna. Skatttekjur og tryggingagjöld námu 195,8 milljörðum á fyrstu sex mánuðum ársins. Um er að ræða 9,9 prósenta hækkun að nafnvirði frá árinu á undan en upphæðin er 1,4 prósentum undir tekjuáætlun fjárlaga. Tekjur af ýmsum sköttum voru minni en búist var við, svo sem af áfengisgjaldi og tóbaksgjald. Greidd gjöld ríkissjóðs námu 261,6 milljörðum króna og jukust um 3,1 milljarð frá fyrra ári.- mþl
Fréttir Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira