KR-ingar frábærir í seinni hálfleik og 1-0 yfir á móti Njarðvík Elvar Geir Magnússon skrifar 17. mars 2011 20:47 Marcus Walker. Mynd/Daníel
Marcus Walker fór í gang í seinni hálfleik og KR-ingar unnu öruggan tólf stiga sigur, 92-80, á Njarðvík í fyrsta leik liðanna í einvígi þeirra í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla. KR er því 1-0 yfir en næsti leikur er í Njarðvík á sunnudagskvöldið. Marcus Walker skoraði 27 af 33 stigum sínum í seinni hálfleik og var aðalmaðurinn á bak við að KR vann seinni hálfleikinn 59-42. Brynjar Þór Björnsson átti líka mjög góðan leik og skoraði 20 stig. Melzie Moore skoraði 20 stig fyrir Njarðvík og Giordan Watson skoraði 12 stig. Gestirnir frá Njarðvík byrjuðu leikinn betur. Það virtist vera ákveðið stress í KR-ingum sem voru ekki að spila sem lið og hittu illa. Njarðvík var fjórum stigum yfir eftir fyrst fjórðung. Sá annar einkenndist af mikilli baráttu og var mönnum orðið ansi heitt í hamsi. Nokkrir vafasamir dómar hjálpuðu ekki til að lækka hitann og gott að leikhlutinn var ekki lengri því það var öllum fyrir bestu að komast inn í klefa og róa aðeins taugarnar. Það gerði KR-ingum allavega gott því þeir komu gríðarlega öflugir til leiks eftir hlé. Staðan var 33-38 í hálfleik en með frábærri byrjun komst KR loks yfir 44-42 og vakti það stuðningsmenn þeirra sem höfðu vægast sagt látið lítið fyrir sér fara fram að þessu. Stemningin var algjörlega heimamanna og Njarðvíkingar brotnuðu hægt og rólega. Staðan 62-56 fyrir lokafjórðunginn. Þar kláruðu Vesturbæingar leikinn fagmannlega, voru í flottum takti með sjóðheitan Marcus Walker í fararbroddi.
Dominos-deild karla Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fótbolti „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti Segir raunhæft að Þjóðarhöllin verði risin árið 2030 Sport Sterkasti læknir landsins Sport Svona verður útsending Sýnar Sport í kringum stórleiki kvöldsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Sjá meira