Veðjaði á hvaða kórónu Kate mun bera - gæti unnið milljónir 26. apríl 2011 21:15
Kona ein í Bretlandi gæti orðið þrettán milljónum króna ríkari ákveði Kate Middleton að bera sömu kórónu og Elísabet Englandsdrottning bar í sínu brúðkaupi þegar hún gengur að eiga Vilhjálm krónprins á föstudaginn kemur. Veðmálafyrirtækið Ladbrokes er nú hætt að taka við veðmálum um hvaða kórónu Kate verður með, eftir að miðaldra kona veðjaði sex þúsund pundum á að Middleton myndi bera kórónuna góðu. Kórónan er 180 ára gömul og var mikið notuð af Viktoríu drottningu og Maríu drottningu auk þess sem móðir Elísabetar bar hana af og til. Elísabet fékk hana svo lánaða í eigið brúðkaup og það gerði dóttir hennar einnig þegar hún gifti sig árið 1973. Ladbrokes höfðu gert ráð fyrir því að mestar líkur væru á því að Kate myndi bera sömu kórónu og Díana prinsessa bar þegar hún giftist Karli Bretaprinsi en eftir að konan ákvað að leggja svo stóra upphæð á gömlu kórónuna runnu tvær grímur á veðbankamennina. Þeir óttast að hún hafi einhverjar innherjaupplýsingar og því var henni í fyrstu neitað um veðmálið. Hún fór þá í annað útibú þar sem hún veðjaði og fékk líkurnar 12 á móti einum.
William & Kate Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Sjá meira