Koma hefði mátt í veg fyrir gjaldþrot fjölmargra fyrirtækja Helga Arnardóttir skrifar 22. apríl 2011 18:43
Lánafyrirtæki eru farin að viðurkenna ólögmæti fleiri gengistryggðra lánasamninga en Hæstiréttur hefur úrskurðað um. Koma hefði mátt í veg fyrir gjaldþrot fjölmargra fyrirtækja ef lánafyrirtækin hefðu tekið mið af eldri dómum Hæstaréttar. Helga Arnardóttir. Í vikunni úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að gengistryggðir fjármögnunarleigusamningar væru ólöglegir. Slíkir samningar voru gerðir fyrir hrun til að fjármagna kaup fyrirtækja á atvinnutækjum. Lánafyrirtækin hafa jafnan stuðst við fimm lánasamningsform. Kaupleigusamninga, bílasamninga, fjármögnunarleigusamninga, einkaleigusamninga og rekstrarleigusamninga. Kaupleigu og bílasamningar voru dæmdir ólögmætir í fyrra.Árni Helgason lögmaður„Í kjölfar þeirra dóma brugðust fyrirtækin þannig við að þau töldu hin þrjú formin, sem eru fjármögnunarleiga, einkaleiga og rekstrarleiga vera lögmæt og annars eðlis," segir Árni Helgason héraðsdómslögmaður og lögmaður lántakanda hjá SP-fjármögnun. Nú hafa fjármögnunarleigusamningar verið dæmdir ólögmætir en dómstólar hafa ekki tekið afstöðu til einkaleigu og rekstrarleigusamninga. Þó eru dæmi um að lánafyrirtækin telji önnur gengistryggð lánaform ólögmæt þótt dómar hafi ekki fallið í þeim efnum. Skjólstæðingur Árna Helgasonar lögmanns var með einkaleigusamning hjá Sp fjármögnun. „Sp-fjármögnun féllst á það að einkaleigusamningar væru þess eðlis að það bæri að endurreikna þá eins og aðra samninga sem hafa verið dæmdi ólögmætir. Þetta var ákveðin breyting frá því sem þeir höfðu sagt áður. Það munaði töluverðu fyrir fólk sem er búið að greiða af þessu í nokkur ár," segir Árni og bætir við að treglega hafi gengið að fá bankana til að viðurkenna og endurreikna þessi lán. Hann segir að hefðu lánafyrirtækin tekið samstundis mið af dómum Hæstaréttar frá því í fyrra hefði hugsanlega verið hægt að koma í veg fyrir fjölmörg gjaldþrot hjá einstaklingum og fyrirtækjum. „Það er auðvitað orðið mál sem þarf að skoða líka, hvernig á að fara með fyrirtæki sem hafa verið í fjárhagslegri spennitreyju og óvissu hjá bönkunum í tvö og hálft ár, þegar í ljós kemur að þessi lán voru allan tímann ólögmæt," segir Árni.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjá meira