Hlynur og Jakob spila fyrsta leik úrslitanna í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. apríl 2011 13:15 Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson. Mynd/Valli
Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson verða í eldlínunni í dag þegar úrslitaeinvígi Sundsvall Dragons og Norrköping Dolphins fer af stað en fyrsti leikurinn fer fram í Sundsvall og hefst klukkna 14.04 að íslenskum tíma. Það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki verður sænskur meistari. Sundsvall og Norrköping hafa unnið tvo leiki hvort í innbyrðisleikjum sínum á tímabilinu en á meðan að Sundsvall komst í úrslitaeinvígið með því að sópa út Södertalje þá þurfti Norrköping oddaleik til þess að slá út LF Basket. Undanúrslitaeinvígið hjá Norrköping kláraðist á miðvikudagskvöldið þannig að liðið fékk ekki langan tíma til þess að undirbúa sig fyrir lokaúrslitin. Sundsvall, sem varð deildarmeistari og er því með heimavallarrétt í úrslitunum, hefur unnið 6 af 8 leikjum sínum í úrslitakeppninni. Jakob er með 16 stig og 6,1 stoðsendingu að meðaltali í úrslitakeppninni en Hlynur er með 12,0 stig og 8,5 fráköst að meðaltali í þessum átta leikjum. Hlynur skrifaði um úrslitaeinvígið á bloggsíðu sinni og má finna allan pistilinn með því að smella hér. „Ég er ánægður með að fá þá, flott lið með góða umgjörð. Höllin hjá þeim og öll aðstaða er mjög töff. Virðist vera komin fín stemmning í áhorfendurna hjá þeim líka en þeir voru fullrólegir í vetur. Vonandi verða læti og pakkað hjá þeim eins og verður pottþétt hjá okkur, segir Hlynur þar og skrifar ennfremur. „Þetta er best of 7 sería, ég hef aldrei spilað í þannig áður. Byrjað á föstudaginn langa og svo spilað annan hvern dag held ég út seríuna. Það er langt ferðalag til Norrköping og alltaf gist eina nótt á hóteli. Verður strembið en svona viljum við samt hafa þetta. Líf og fjör," segir Hlynur á bloggsíðu sinni.
Körfubolti Mest lesið Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Fótbolti Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Gaf klárum boltastrák verðlaunin Fótbolti Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Enski boltinn Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi Íslenski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Körfubolti Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt Íslenski boltinn Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn Fleiri fréttir Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Frábær leikur Martins dugði ekki Völdu ekki Bronny af virðingu við LeBron „Hann gerir einhvern veginn alla í kringum sig betri“ Súrt tap í framlengdum leik hjá Tryggva Snæ og félögum Helena tekin inn í heiðurshöll TCU Telur að Thomas sé betri en Basile Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Njarðvík leikur í IceMar-höllinni „Verðum að vera harðari“ „Borgarnes-Bjarni grjótharður í þessum leik“ Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Allir nema einn völdu Clark sem nýliða ársins Uppgjörið: Þór Þ. - Njarðvík 93-90 | Þór vann græna slaginn „Ennisbandið var slegið af honum“ Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 101-108 | Hasar og læti í framlengdum leik í Forsetahöllinni Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur Uppgjörið: Haukar - Höttur 80-108 | Ótrúlega öruggur sigur Hattar í Hafnarfirði Martin mátti þola tap í fyrsta leik EuroLeague Finnur Freyr í bann fyrir lætin í Keflavík Teitur í Ljónagryfjunni: „Eitthvað við húsið og söguna sem náði því besta úr mönnum“ Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi „Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“ Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 71-64 | Baráttuglaðar Stjörnustúlkur lögðu Íslandsmeistarana Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ GAZið: „Ætla að reyna aðeins meira á mig“ Haukar og Valur byrja Bónus deildina á sigrum Sjá meira