80 milljónir féllu beint á Eimskip vegna strands Goðafoss 19. maí 2011 13:13 Goðafoss strandaði í Noregi og mengaði fjörðinn.
Afkoma Eimskips er umfram væntingar fyrsta ársfjórðung þessa árs samkvæmt tilkynningu frá félaginu en félagið hagnaðist um tæplega milljarð eftir skatta. Afkoma af reglulegri starfsemi var hinsvegar undir væntingum og er megin skýring þess kostnaður sem féll á félagið vegna strands Goðafoss í Noregi um miðjan febrúar, sem og 3% almennur samdráttur í flutningamagni í áætlanasiglingum á tímabilinu. Strandið á Goðafossi er með stærri tjónum sem félagið hefur orðið fyrir á síðustu áratugum en félagið er vel tryggt og getur því vel mætt slíkum áföllum. En þrátt fyrir það féll um 80 milljónir króna beinn kostnaður á félagið á fyrsta ársfjórðungi vegna óhappsins. Heildarvelta Eimskips samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi var 14,3 milljarðar ISK (EUR 90,2 m) samanborið við 12,5 milljarða ISK árið 2010 samkvæmt nýútgefinni fjórðungsskýrslu félagsins. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var um 2,1 milljarðar ISK, (EUR 13 m) en var 1,2 milljarðar ISK árið 2010. Hagnaður eftir skatta var 928 milljónir ISK (EUR 5,8 m) en var 202 milljónir ISK árið 2010. Heildareignir félagsins í lok mars voru 45,7 milljarðar ISK (EUR 283 m) og er eiginfjárhlutfallið 59%. Vaxtaberandi skuldir voru 11 milljarðar ISK (EUR 69 m). Flutningamagn samstæðunnar í áætlanasiglingum dróst saman um 3% á fyrsta ársfjórðungi á milli ára en flutningamagn í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun Eimskips jókst um 7% á milli ára á sama tímabili.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira