Viðskipti erlent

Lækkar tolla á Ind­land

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Í færslunni segir Trump Modi vera einn af sínum bestu vinum.
Í færslunni segir Trump Modi vera einn af sínum bestu vinum. AP

Bandaríkin og Indland hafa komist að viðskiptasamkomulagi. Þeir fyrrnefndu hafa samþykkt að lækka töluvert tolla sína á indverskar vörur gegn því að Indland hætti að eiga í viðskiptum við Rússland.

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að samningurinn væri í höfn á samfélagsmiðlum. Hann sagðist hafa rætt við Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, sem á að hafa samþykkt að kaupa olíu af Bandaríkjunum og mögulega Venesúela í stað Rússlands.

Trump samþykkti að lækka tolla á indverskar vörur úr fimmtíu prósentum niður í átján prósent. Reuters hefur eftir embættismanni í Hvíta húsinu sem segir að Bandaríkin væru að afnema 25 prósenta refsiaðgerðatoll á allan innflutning frá Indlandi vegna olíukaupa þeirra frá Rússlandi. 

Í færslu Trumps á samfélagsmiðli hans Truth Social segir hann ákvörðun Modi hjálpa til við að binda enda á stríðið í Úkraínu. 

„Forsætisráðherra skuldbatt sig einnig til að KAUPA BANDARÍSKT í mun meira mæli, til viðbótar yfir 500 MILLJARÐA DALA virði af bandarískri orku, tækni, landbúnaðarvörum, kolum og mörgum öðrum vörum. Okkar frábæra samband við Indland verður enn sterkara í framtíðinni,“ skrifar forsetinn.

Fáeinir dagar eru síðan Modi undirritaði nýjan fríverslunarsamning milli Evrópusambandsins og Indlands sem er sagður munu leiða til þess að útflutningur aðildarríkjanna til Indlands munu tvöfaldast fyrir árið 2032.

„Þessi samningur mun skapa 1,4 milljörðum Indverja og milljónum Evrópubúa gríðarleg tækifæri,“ sagði Modi. Um væri að ræða dásamlegt dæmi um það hvernig tvö stærstu hagkerfi heims gætu unnið saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×