FME krefst þess að LSR hækki iðgjöldin um 4% 19. maí 2011 07:28
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur krafist þess að Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hækki iðgjöld sjóðsfélaga í A-deild sjóðsins um 4% þannig að þau verði 19,5% í heildina. Með þessu náist jafnvægi á tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. Fjallað er um málið á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins en þar kemur fram að á síðasta ári hafi staða A-deildar sjóðsins verið neikvæð um 12% eða rúmlega 47 milljarða kr. Lífeyrissjóðurinn hefur mætt þessum kröfum eftirlitsins með því að benda á reglur um almenna lífeyrissjóði sem er heimilt að hafa neikvæða stöðu upp á 10%. Þessu hafnar Fjármálaeftirlitið og segir að sérlög gildi um sjóðinn sem gangi framar þeim lögum sem gilda á almennum markaði. Um þetta segir á vefsíðu eftirlitsins: „... er það niðurstaða Fjármálaeftirlitsins að lög ... um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins séu sérlög sem gildi um LSR og gangi framar almennum ákvæðum laga ... um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Í lögum eru skilyrðislaus fyrirmæli um að stjórn LSR beri að endurskoða iðgjald launagreiðenda árlega. Við þá endurskoðun skuli það sjónarmið ráða för að hrein eign A-deildar LSR til greiðslu lífeyris ásamt núvirði framtíðariðgjalda til A-deildar LSR séu á hverjum tíma jafnhá núvirði væntanlegs lífeyris vegna þegar greiddra iðgjalda og framtíðariðgjalda. Það er því ljóst að stjórn LSR ber árlega að endurskoða iðgjald launagreiðenda með hliðsjón af tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins á þann veg að ekki sé munur á eignaliðum og lífeyrisskuldbindingum. Iðgjöld til A- deildar LSR eru nú 15,5% af launum, þar af eru iðgjöld sjóðfélaga 4% og iðgjöld launagreiðenda 11,5%. Ætlað er að hækka þyrfti heildariðgjaldið um 4 prósentustig eða í 19,5%, til að heildarstaða A-deildar sjóðsins yrði í jafnvægi.“
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira