Segir Wessman skulda persónulega yfir 20 milljarða króna Valur Grettisson skrifar 18. maí 2011 10:09 Björgólfur Thor og Róbert Wessman deila nú fyrir dómstólum. Myndin er samsett. „
Róbert Wessman hefur ákveðið að áfrýja frávísun Héraðsdóms og auðvitað er það sjálfsagður réttur hans, vilji hann halda málinu til streitu," segir Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, um ákvörðun Róberts Wessman að áfrýja frávísunarúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í gær. Lögfræðingur Róberts hefur áhyggjur af því að dráttur málsins verði til þess að Novator fari í þrot áður en málinu ljúki. Þessu hafnar Ragnhildur og bætir við að Róbert skuldi persónulega yfir 20 milljarða króna. Róbert stefndi félögunum Novator Pharma Holding, sem er skrásett á Tortóla, og Novator Pharma í ágúst á síðasta ári. Ástæðan var sú að hann taldi sig eiga inni 30 milljónir evra, eða um 4,6 milljarða króna, vegna árangurstengdrar þóknunar. En Róbert var forstjóri Actavis, áður Delta, í tæp tíu ár. Héraðsdómur féllst á frávísunarkröfu verjanda félaganna þar sem Róbert hafði ekki ársreikning Actavis undir höndum þegar hann krafðist upphæðarinnar, sem er, eins og fyrr segir, árangurstengd. Lögfræðingur Róberts sagði í viðtali við Vísi í gær að þarna væri ekki um efnislega niðurstöðu að ræða og því yrði málinu áfrýjað. Staðfesti hæstiréttur niðurstöðu héraðsdóms verður málið höfðað upp á nýtt að sögn Árna Harðarsonar, lögmanns Róberts. Aftur á móti hafði Árni áhyggjur af drætti málsins. Hann sagði á Vísi í gær: „Það er vont að missa þennan tíma þar sem við óttumst að Novator, félag Björgólfs sem stefnt var í málinu, fari í þrot áður en við fáum efnisdóm þar sem búið er að færa eignarhaldið á Actavis í annað félag í hans eigu." Þessu sjónarmiði er Ragnhildur ósammála: „Það er í meira lagi undarlegt af lögmanni Róberts að láta eins og tíminn vinni gegn honum vegna hættu á að Novator fari í þrot. Novator hefur samið við kröfuhafa sína og starfar í fullri sátt við þá," segir hún og bætir við: „Mér sýnist líklegra að sá sem skuldar persónulega yfir 20 milljarða króna, þ.e. Róbert Wessman, fari fremur í þrot en félag sem hefur samið um uppgjör við lánardrottna sína. Lögmaður Róberts snýr þessu á haus."
Tengdar fréttir Björgólfur hafði betur: Máli Wessman vísað frá dómi Dómari Héraðsdóms Reykjavíkur féllst á frávísunarkröfu Novator í dag í skuldamáli sem athafnamaðurinn Róbert Wessmann höfðaði gegn fyrirtækinu, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar. 17. maí 2011 14:31 Wessman mun áfrýja - óttast að Novator fari í þrot á meðan „ Þetta er náttúrulega engin efnisdómur um kröfuna og verður úrskurðinum áfrýjað til Hæstaréttar,“ segir lögmaður Róberts Wessman, Árni Harðarson, um frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í dag. Róbert höfðaði mál gegn félögum Björgólfs Thors Björgólfssonar, Novator Pharma Holding, sem er skrásett á Tortóla, og Novator Pharma í ágúst á síðasta ári. 17. maí 2011 15:46 Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira
Björgólfur hafði betur: Máli Wessman vísað frá dómi Dómari Héraðsdóms Reykjavíkur féllst á frávísunarkröfu Novator í dag í skuldamáli sem athafnamaðurinn Róbert Wessmann höfðaði gegn fyrirtækinu, sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar. 17. maí 2011 14:31
Wessman mun áfrýja - óttast að Novator fari í þrot á meðan „ Þetta er náttúrulega engin efnisdómur um kröfuna og verður úrskurðinum áfrýjað til Hæstaréttar,“ segir lögmaður Róberts Wessman, Árni Harðarson, um frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í dag. Róbert höfðaði mál gegn félögum Björgólfs Thors Björgólfssonar, Novator Pharma Holding, sem er skrásett á Tortóla, og Novator Pharma í ágúst á síðasta ári. 17. maí 2011 15:46