Stuðningsstuðull atvinnulífsins úr jafnvægi Hafsteinn Hauksson skrifar 13. maí 2011 19:30
Fyrir hvern einn starfsmann í einkageiranum er einn og hálfur sem ýmist vinnur hjá hinu opinbera, þiggur bætur eða er utan vinnumarkaðar. Hlutfallið hefur tekið stökk frá hruni, en Viðskiptaráð segir að snúa þurfi þróuninni við. Stuðningsstuðull atvinnulífsins mælir þetta hlutfall, og segir til um styrk hagkerfisins til að standa undir opinberri þjónustu, en Viðskiptaráð hefur gert úttekt á stuðlinum á Íslandi. Hér unnu 125 þúsund manns hjá einkafyrirtækjum á síðasta ári. Á sama tíma unnu 42 þúsund manns hjá hinu opinbera, tæplega fjórtán þúsund þáðu atvinnuleysisbætur, og 137 þúsund voru utan vinnumarkaða, þar á meðal börn, öryrkjar og lífeyrisþegar sem njóta stuðnings sameiginlegra sjóða. Viðskiptaráð segir þannig að hver einstaklingur á almennum vinnumarkaði hafi staðið að baki 1,54 einstaklingum, fyrir utan sjálfan sig, sem studdur var með opinberu fé eða millifærslum á síðasta ári. Hér er raunar litið fram hjá þeim verðmætum sem falist geta í opinberri þjónustu, en ráðið leggur áherslu á að lægri stuðull merki aðeins að hagkerfið sé betur í stakk búið til að standa vörð um þá sem þurfa á aðstoð að halda. Þessi stuðull hefur hækkað um 20% frá hruni, sem merkir að færri á almennum vinnumarkaði standa undir fleirum á framfæri hins opinbera. Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir þróunina vera til hins verra. „Það eru færri á almennum vinnumarkaði í einkareknum fyrirtækjum, sem standa á bak við þá sem standa utan vinnumarkaðarins. Við höfum færri til að bera byrðarnar við hina sameiginlegu þjónustu," segir Finnur. „Við þurfum að snúa þessu hlutfalli við. Það eru tvær leiðir til að gera það. Annarsvegar að skera niður í opinberri þjónustu, en það er verk sem er greinilega mjög erfitt að vinna, og hinsvegar að efla atvinnulífið. Það er það sem við erum að leggja áherslu á," segir Finnur um hið síðarnefnda. „Það er kannski sérkennilegt að það þurfi að benda á þessa augljósu staðreynd, en þetta samhengi virðist vera að tapast; samhengi atvinnulífs og velferðar á Íslandi," segir Finnur.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira