Hefði mátt auka hagvöxt um 2% JMG skrifar 12. maí 2011 12:04 Ragnar Árnason hagfræðiprófessor.
Með réttri hagstjórn hefði hagvöxtur á árinu 2010 getað verið um tvö prósent í stað þriðja mesta samdráttar á lýðveldistímanum, segir hagfræðiprófessor. Ríkisstjórnin hafi í byrjun kreppunnar hækkað skatta þvert á hagfræðistefnur og dregið þannig mátt úr fyrirtækjum og heimilum. Ragnar Árnason hagfræðiprófessor hjá Háskóla Íslands var gestur á morgunverðarfundi Deloitte um skattabreytingar í Turninum í morgun. Hann flutti þar erindi um skattheimtur og hagvöxt. „Meginniðurstaða mín er sú að þessi kreppa sem við erum núna í hún sé að stórum hluta vegna mistaka í hagstjórn og rangrar efnahagsstefnu, og að á árinu í fyrra þegar samdráttur þjóðarbúskapsins var 3,5 prósent, þriðja mesta samdráttarár á lýðveldistímanum hefðum við getað haft hagvöxt," sagði Ragnar. Hann segir ástæðu þessa vera að hér sé mikið ónotað vinnuafl og ríkar náttúruauðlindir sem við erum ekki að nýta til fullnustu. Íslendingar hafi alla fjármuni og getu til að framleiða meira. Mistökin í hagstjórninni séu því mörg. „Það má segja að flest af því sem að þessi ríkisstjórn hefur gert í efnahagsmálum hafi verið í ranga átt, það sem stendur upp úr er ótæpileg skattheimta á krepputímum þegar allar hagfræðibækur segja að það eigi að lækka skatta frekar, þá hafa skattar verið hækkaðir og það hefur dregið mátt úr fyrirtækjum og heimilum sem máttu nú eiginlega ekki við því," segir Ragnar ennfremur. Stjórnvöld hafi staðið fyrir of háum raunvöxtum, gjaldeyrishömlum og stöðugum hótunum og skattheimtu á grundvallaratvinnuvegi svo sem sjávarútveg og orkuvinnslu. „Allt skapar þetta mikla óvissu og áhyggjur og dregur úr vilja manna til að fjárfesta og hætta fé sínu með þeim afleiðingum að bæði fyrirtæki og einstaklingar fara úr landi eða bara halda að sér höndum og bíða að þessu linni," segir Ragnar. Þetta kostar Íslendinga töluverðar fjárhæðir á ári hverju. Á árinu 2010 varð hér 3,5 prósenta samdráttur í landsframleiðslu sem hægt er að meta á um 30-40 milljarða króna. Ragnar telur að hér hefði með réttri hagstjórn getað verið hagvöxtur upp á 2 prósent. „Heildar kostnaður ef við hefðum haft hagvöxt á árinu 2010 í stað samdráttar þá er það 80 milljarðar króna," segir Ragnar.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira