Ríkið reynir brátt 82 milljarða útgáfu á erlendum markaði 23. maí 2011 09:49
Búast má við að fjármálaráðuneytið og Seðlabankinn fari á stúfana á næstu vikum að vinna fyrstu útgáfu erlendra skuldabréfa ríkissjóðs frá hruni brautargengis. Greining Íslandsbanka telur líklegt að fyrsta útgáfan verða á þriðja ársfjórðungi ársins. Upphæðin yrði um 500 milljónir evra eða um 82 milljarða kr. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að stjórnvöld hafi nú tvær lánshæfiseinkunnir í fjárfestingarflokki upp á vasann eftir að í ljós kom að S&P og Moody's munu ekki lækka erlenda einkunn ríkissjóðs að sinni. „Við teljum líklegt að reynt verði að ýta slíkri útgáfu úr vör á þriðja fjórðungi ársins og að stjórnvöld leitist við að afla a.m.k. 500 milljóna evra eða sambærilegrar fjárhæðar í dollurum á þessu ári,“ segir í Morgunkorninu. „Takist það verður hægt að endurfjármagna þann hluta gjaldeyrisforða Seðlabankans sem nú er fjármagnaður með tveimur skuldabréfum sem eru á gjalddaga í desember á þessu ári og apríl á næsta ári. Af fyrrnefnda bréfinu eru nú tæplega 290 milljónir evra útistandandi en 165 milljónir evra af hinu síðara. Samtals eru því 455 milljónir evra, jafnvirði tæpra 75 milljarða kr., erlendra skulda á gjalddaga næstu 12 mánuði auk vaxta.“ Þá segir að hin fyrirhugaða útgáfa hefur þó fjölbreyttari tilgang en bara að mæta yfirvofandi gjalddögum. Hún mun þannig væntanlega ryðja brautina fyrir útgáfur annarra innlendra aðila á borð við Landsvirkjun. Auk heldur er mikilvægt fyrir árangursríka afléttingu gjaldeyrishafta að sýnt sé fram á að íslensk stjórnvöld hafi aðrar leiðir til að afla gjaldeyris en eingöngu það lánsfé sem fengist hefur með efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og stjórnvalda. „Fróðlegt verður að fylgjast með þeim kjörum sem ríkissjóði munu standa til boða þegar til kastanna kemur í útboði bréfanna. Þau kjör munu væntanlega mynda grunn af þeim lánskjörum sem aðrir innlendir aðilar geta vænst í kjölfarið,“ segir í Morgunkorninu. „Við erum þeirrar skoðunar að full bjartsýnt geti verið að miða vænt álag ríkisskuldabréfa í erlendri mynt við skuldatryggingaálag eins og það kemur fram hjá erlendum gagnaveitum. Skuldatryggingaálagið hefur litast af miklum uppkaupum á útistandandi erlendum útgáfum ríkissjóðs undanfarið ár. Ekki má gleyma því að skuldatryggingaálagið er í grunninn verðlagning á tryggingu gegn greiðslufalli. Þegar undirliggjandi eign er keypt til baka minnkar að sama skapi þörf fyrri eiganda fyrir tryggingu og myndar það söluþrýsting á skuldatryggingarnar. Skuldatryggingaálag til 5 ára stendur nú í 207 punktum og má telja harla gott ef ríkissjóður nær sambærilegum kjörum á útgáfu sína á seinni helmingi ársins.“
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira