Exeter: Styrmir segist ekki hafa haft ítök í BYR Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. maí 2011 13:15 Ákæruvaldið. Björn Þorvaldsson saksóknari vakti máls á því að BYR hefði tekið alla ábyrgð á viðskiptunum. Mynd/ GVA.
Styrmir Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, segist ekki hafa verið með nein ítök í BYR sparisjóði sem gætu hafa haft áhrif á viðskipti með stofnfjárbréf í BYR sparisjóði. Þetta kom fram í máli Styrmis þegar hann gaf skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í Exetermálinu í morgun. Viðskiptin fóru fram með vilja Margeirs Péturssonar, stjórnarformanns MP, fyrir milligöngu Styrmis og samskipta hans við stjórnendur BYRS. Allir sakborningarnir í málinu gáfu skýrslu fyrir dómi í morgun. Styrmir er einn þeirra. Í málinu er hann, ásamt stjórnarformanni og sparisjóðsstjóra BYRS, grunaðir um umboðssvik þegar BYR veitti samtals um 1100 milljóna króna lán til Exeter og Tæknisetursins Arkea, en fyrrnefnda félagið var reist á grunni hins síðarnefnda. Lánið var veitt til kaupa á bréfum sem Birgir Ómar Haraldsson, sem var varastjórnarmaður í BYR, og Jón Þorsteinn Jónsson, þáverandi stjórnarformaður BYRS, seldu. Björn Þorvaldsson saksóknari vakti máls á því við aðalmeðferðina í morgun að í viðskiptunum við Tæknisetrið Arkea hafi BYR sparisjóður borið alla ábyrgðina. MP banki, sem var nátengdur Arkea, hafi ekki borið neina ábyrgð á viðskiptunum. Þrátt fyrir þetta neitar Styrmir Bragason að hann, eða MP banki, hafi haft einhver ítök í BYR. Máli sínu til stuðnings benti hann á að BYR hefði verið miklu stærri fjármálastofnun en MP banki á þessum tíma. BYR hefði verið með 50 milljarða eigið fé en MP um 5 milljarða. Það væri því erfitt að ímynda sér að MP banki gæti haft einhver ítök i BYR. Exetermálið er fyrsta mál sérstaks saksóknara sem ákært var í. Um það bil ár er liðið frá því að ákært var í málinu.
Tengdar fréttir Exeter: Stjórnarformaður vísar ábyrgð á forstjóra Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs sparisjóðs vísar frá sér allri ábyrgð á lánum í Exetermálinu svokallaða. Hann segir að þáverandi forstjóri Byrs, Ragnar Z. Guðjónsson hafi borið ábyrgð á lánamálum og haft heimild til að veita lán upp að allt að 1,5 milljarði króna. Aðalmeðferð í málinu hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og er dómurinn fjölskipaður. 30. maí 2011 09:50 Exeter: Vísa ábyrgð hvor á annan Skýrslutökum yfir tveimur af sakborningum í Exetermálinu svokallaða er lokið. Aðalmeðerð málsins hófst formlega í Héraðsdómi Reykjavíkur hófst í morgun. Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, var fyrstur til að bera vitni í málinu. Næstur bar Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri vitni. Nú rétt eftir klukkan hálf tólf hófst svo skýrslutaka af Styrmi Bragasyni, fyrrverandi forstjóra MP, banka. 30. maí 2011 11:33 Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira
Exeter: Stjórnarformaður vísar ábyrgð á forstjóra Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs sparisjóðs vísar frá sér allri ábyrgð á lánum í Exetermálinu svokallaða. Hann segir að þáverandi forstjóri Byrs, Ragnar Z. Guðjónsson hafi borið ábyrgð á lánamálum og haft heimild til að veita lán upp að allt að 1,5 milljarði króna. Aðalmeðferð í málinu hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og er dómurinn fjölskipaður. 30. maí 2011 09:50
Exeter: Vísa ábyrgð hvor á annan Skýrslutökum yfir tveimur af sakborningum í Exetermálinu svokallaða er lokið. Aðalmeðerð málsins hófst formlega í Héraðsdómi Reykjavíkur hófst í morgun. Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, var fyrstur til að bera vitni í málinu. Næstur bar Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri vitni. Nú rétt eftir klukkan hálf tólf hófst svo skýrslutaka af Styrmi Bragasyni, fyrrverandi forstjóra MP, banka. 30. maí 2011 11:33