Jarðboranir gera risasasamning 9. júní 2011 15:33 Mighty River Power á og rekur fjögur jarðvarmaorkuver, þar á meðal Nga Awa Purua orkuverið sem sér 140.000 heimilum á Nýja Sjálandi fyrir umhverfisvænni raforku.
Jarðboranir hafa samið við eitt stærsta orkufyrirtæki Nýja-Sjálands, Mighty River Power, um framkvæmdir þar í landi. Samningurinn, sem er að verðmæti um 3 milljarðar króna, verður undirritaður síðar í mánuðinum. Í tilkynningu frá Jarðborunum segir að verkefnið felist í borunum eftir jarðhita á svonefndu Ngatamariki jarðhitasvæði sem er um 17 km norðaustur af stöðuvatninu Taupo, um miðbik nyrðri eyju Nýja-Sjálands. „Jarðhitinn verður nýttur til raforkuframleiðslu í nýju orkuveri á svæðinu sem verður í upphafi 82 MW og síðar stækkað í áföngum. Samningurinn er að lágmarki til tveggja ára og verður Týr, sem er stærsti bor landsins, fluttur yfir hálfan hnöttinn til verkefnisins. Gert er ráð fyrir að á fjórða tug sérfræðinga Jarðborana fari utan til að vinna við framkvæmdirnar og undirbúning þeirra.“ Bent S. Einarsson, forstjóri Jarðborana segir samninginn afar ánægjulegan enda sé um að ræða stærsta og metnaðarfyllsta verkefni sem fyrirtækið hafi ráðist í erlendis. „Jarðboranir urðu hlutskarpastar í alþjóðlegu útboði sem fjöldi borverktaka tók þátt í. Mighty River Power gerði í útboðinu kröfur um tæknilega þekkingu og alþjóðlega vottun á sviði umhverfis og öryggismála, auk þess sem reynsla af viðlíka verkefnum var skilyrði. Við stóðumst þessar kröfur og höfum fundið fyrir því að Jarðboranir njóta trausts á alþjóðlegum bormarkaði, ekki síst vegna áratuga reynslu fyrirtækisins af jarðhitaframkvæmdum á Íslandi og víðar." Framkvæmdirnar á Nýja-Sjálandi styrkja verkefnastöðu Jarðborana og munu skipta miklu við enn frekari uppbyggingu á alþjóðlegri starfsemi félagsins enda er Nýja-Sjáland afar áhugaverður markaður. „Við höfum unnið að markaðssetningu á Nýja-Sjálandi í nokkurn tíma og nú er það framtak að skila árangri. Nýsjálendingar leggja vaxandi áherslu á að auka hlutdeild endurnýjanlegrar orku í landinu enda er þeim ljóst hve jarðvarminn er hagkvæmur og vistvænn orkugjafi. Nýsjálendingar eru nú þegar meðal fremstu þjóða heims á þessu sviði og eru ákveðnir í því að ná enn lengra." Mark Trigg, framkvæmdastjóri viðskipaþróunar hjá Mighty River Power segir að þeim þyki mikill akkur í að fá hingað til lands borfyrirtæki frá Íslandi sem hafi mikla reynslu af jarðhitaborunum, auk þess sem þeir flytji til landsins nýja kynslóð af tækjabúnaði sem hefur meiri sjálfvirkni en sá borbúnaður sem unnið hefur verið með fram að þessu. „Tilkoma hans er mikilvægt skref fram á við í bortækni hér á landi en borinn verður ekki aðeins nýttur á Ngatamariki jarðhitasvæðinu, heldur stendur líka til að nota hann við rannsóknarboranir á nýjum svæðum og við endurnýjun á eldri borholum."
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira