Afgangur af vöruskiptum 21% minni en í fyrra 9. júní 2011 11:11
Sé miðað við fyrstu fimm mánuði ársins er vöruskiptaafgangur um 21% minni nú í ár en hann var á sama tíma í fyrra. Er munurinn tilkominn af miklum vexti innflutnings, og þá verulega umfram vöxt útflutnings. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Að teknu tilliti til gengisbreytinga var vöruinnflutningur rúmum 21% meiri á fyrstu fimm mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Á sama tímabili hefur vöruútflutningur aukist um tæp rúm 11%. „Má gera ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram næsta kastið og gæti vöruskiptaafgangur orðið nokkru minni þetta árið en hann var í fyrra, en þá nam hann tæpum 119 milljörðum kr.,“ segir í Morgunkorninu. Vöruskiptin við útlönd voru hagstæð um 6,8 milljarða kr. í maí síðastliðnum samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti nú í morgun. Afgangurinn nú í maí er mun minni en hann var á sama tíma í fyrra þegar hann var 16,6 milljarðar kr. á sama gengi. Sem fyrr segir skýrir aukinn innflutningur þennan mun en innflutningur á fjárfestingarvörum hefur verið á töluverði flugi upp á síðkastið. Í raun er aukning á öllum helstu liðum innflutnings nú í maí samanborið við maí í fyrra. Má hér nefna að tvöfalt meira var flutt inn af flutningatækjum nú í maí en í maí fyrir ári, eða fyrir um 4,3 milljarða kr. í stað 2,1 milljarðs kr. Til við bótar við þetta má nefna að innflutningur á hrá- og rekstrarvörum jókst um 47% á þessu tímabili, innflutningur á eldsneyti og smurolíu um 36% og innflutningur á mat- og drykkjarvörum um 32%. Má því sjá að um verulega aukningu er að ræða, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira