Staða stærri fyrirtækja slæm en fer batnandi 9. júní 2011 09:23
Fjárhagsstaða margra stærri fyrirtækja er slæm en hefur farið batnandi frá hruni. Rangir hvatar tefja endurreisn íslensks atvinnulífs. Afleiðing þeirra er m.a. að endurskipulagning fyrirtækja gengur ekki nógu hratt, fyrirtæki koma oft of skuldsett út úr endurskipulagningu og mikil tortryggni og óvissa ríkir á mörkuðum. Nauðsynlegt er að bregðast við þessu. Þetta kemur fram í skýrslu sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag en hún heitir „Samkeppnin eftir hrun". Í skýrslunni er greint frá rannsókn Samkeppniseftirlitsins á fjárhagsstöðu og fjárhagslegri endurskipulagningu 120 stórra fyrirtækja á völdum samkeppnismörkuðum. Þá er í skýrslunni tekin staða á ýmsum þeim verkefnum sem unnið hefur verið að og varða endurskipulagningu fyrirtækja og samkeppnisaðstæður á Íslandi eftir hrun. Hrunið hefur haft mikil áhrif á samkeppni í einstökum atvinnugreinum og samkeppnisstöðu fyrirtækja. Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja, nauðasamningar og gjaldþrot leiða til breytinga á stöðu fyrirtækja innbyrðis. Þetta er óhjákvæmilegt. Brýnir samfélagslegir hagsmunir eru fólgnir í því að brugðist sé hratt við skuldavanda rekstrarhæfra fyrirtækja. Bankar ráða yfir tæplega helmingi eignarhlutar á fyrirtækjum samkvæmt rannsókn Samkeppniseftirlitsins á 120 stórum fyrirtækjum á völdum samkeppnismörkuðum. Þá eru talin með fyrirtæki sem eru í mjög slæmri fjárhagslegri stöðu og ráða ekki örlögum sínum. Nánar tiltekið er hlutur banka 46%, einstaklinga 29%, skilanefnda 7%, lífeyrissjóða 7% og annarra 11%. Hlutur banka fór hæst í 68% strax eftir hrun. Staðan er því slæm en fer batnandi. Ástæða er því áfram til mikillar árvekni því samstaða ríkir um það að bankar séu óheppilegir eigendur að atvinnufyrirtækjum og margskonar samkeppnisleg vandamál geta tengst slíku eignarhaldi banka. Fjárhagsstaða tæplega helmings stærri fyrirtækja er mjög slæm að mati Samkeppniseftirlitsins en um fimmtungur fyrirtækja er í góðri stöðu. Tæplega þriðjungur fyrirtækja hefur lokið fjárhagslegri endurskipulagningu en sama hlutfall fyrirtækja telur sig ekki hafa þörf fyrir endurskipulagningu. Vandi atvinnulífsins felst í of hægu ferli fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja, óánægju með framkvæmd hennar og skorti á trausti og gagnsæi. Þá er fjárhagsstaða um helmings fyrirtækja sem lokið hafa fjárhagslegri endurskipulagningu engu að síður mjög slæm samkvæmt greiningu Samkeppniseftirlitsins. Sú hætta er fyrir hendi að samkeppni minnki verulega til lengri tíma litið vegna þess að of skuldsett fyrirtæki hafa ekki þrótt til að keppa og nýja aðila skortir fjármagn til að komast inn á markaði þar sem aðgangshindranir eru miklar. Að mati Samkeppniseftirlitið eru nokkrir hvatar í kerfinu sem toga í ranga átt og tefja ferlið við endurskipulagningu fyrirtækja og endurreisn atvinnulífsins. Samkeppniseftirlitið telur að taka þurfi á þessum hvötum til að koma í veg fyrir stöðnun eins og varð í Japan í kjölfar bankakreppunnar í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar. Sá áratugur hefur gjarnan verið kallaður „týndi áratugurinn" þar í landi. Vandinn fólst einkum í því að bankar lokuðu ekki á fyrirtæki með lán í vanskilum eða gripu til nauðsynlegrar endurskipulagningar heldur var lánstími framlengdur og fyrirgreiðslur auknar. Þau fyrirtæki sem svo var ástatt um hafa verið kölluð „uppvakningar". Þetta heiti hafa fyrirtækin fengið til að lýsa þeirri staðreynd að þau voru ekki aðeins afar skuldum hlaðin heldur einnig óskilvirk og óhagkvæm. Með hliðsjón af niðurstöðum skýrslunnar leggur Samkeppniseftirlitið áherslu á að beita eftirlitsheimildum sínum til að hraða þessu ferli. Þrennt skal nefnt í þessu sambandi:Tryggja þarf að raunveruleg yfirráð banka yfir fyrirtækjum séu uppi á borðumSettar verði skorður við beinu eignarhaldi með tímafrestumEftirlit með arðsemismarkmiðum verði eflt
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira