Afkoma hins opinbera batnar töluvert milli ára 9. júní 2011 09:05
Á fyrsta ársfjórðungi ársins var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 13,3 milljarða króna, sem er mun hagstæðari niðurstaða en á sama tíma 2010 er hún var neikvæð um 20,7 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 3,5% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 8,2% af tekjum hins opinbera og hefur tekjuafkoman ekki verið hagstæðari síðan á þriðja ársfjórðungi 2008 á þennan mælikvarða. Þetta kemur fram í Hagtíðindum í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2011 sem birt hafa verið á vefsíðu Hagstofunnar. Heildartekjur hins opinbera hækkuðu um 3,2% milli 1. ársfjórðungs 2010 og 2011 eða úr 157,4 milljörðum króna í 162,3 milljarða króna. Tekjuhækkunin skýrist af tveggja milljarða króna aukningu í tekjusköttum, svipaðri aukningu í tryggingagjöldum og ríflega eins milljarðs króna meiri tekjum af skatti á vöru og þjónustu. Heildarútgjöld hins opinbera lækkuðu hins vegar um 1,4% á sama tíma eða úr 178 milljörðum króna 2010 í 175,6 milljarða króna 2011. Sú útgjaldalækkun skýrist aðallega af 2,6 milljarða króna lækkun á vaxtakostnaði og 1,5 milljarða króna lækkun í fjárfestingu. Á móti þessu vegur 1,5 milljarða króna hækkun á félagslegum tilfærslum hins opinbera. Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.717 milljörðum króna í lok 1. ársfjórðungs 2011 eða sem svarar 106% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Að teknu tilliti til peningalegra eigna var hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, neikvæð um 646 milljarða króna í lok þessa ársfjórðungs eða sem svarar 40% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar var hrein peningaleg eign ríkissjóðs neikvæð um 33,6% af landsframleiðslu á sama ársfjórðungi 2010 og 16,3% á sama ársfjórðungi 2009. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs hefur því versnað um 129 milljarða króna milli 1. ársfjórðungs 2010 og 2011.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira