Neyðarlínan kaupir af Vodafone 8. júní 2011 10:08
Neyðarlínan hefur keypt af Vodafone 12 fjarskiptahús og 16 fjarskiptamöstur sem ýmist eru staðsett á hálendindu eða í dreifbýli víða um land. Í tilkynningu segir að með kaupunum styrkir Neyðarlínan stoðir TETRA fjarskiptakerfisins fyrir neyðar- og viðbragðsaðila. Um er að ræða búnað og tæki sem Vodafone keypti nýverið af Fjarska, fjarskiptafyrirtæki í eigu Landsvirkjunar, eftir að Fjarski ákvað að draga sig út úr samkeppnisrekstri og sinna eingöngu öryggisfjarskiptaþjónustu vegna raforkukerfisins. Vodafone mun annast gagnaflutninga fyrir Neyðarlínuna til og frá umræddum stöðum en fyrirtækið hefur séð um alla almenna fjarskiptaþjónustu við Neyðarlínuna undanfarin ár. "Neyðarlínan hefur lagt áherslu á að tryggja góða dreifingu á TETRA fjarskiptum á hálendinu sérstaklega fyrir björgunarsveitir og aðra viðbragðsaðila. Vodafone hafði frumkvæði að því að setja GSM á háfjallastaði sem hefur gert það að verkum að stór hluti hálendis er dekkaður,“ segir Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar í tilkynningunni. „Þessi fjarskiptaþjónusta fyrir almenning hefur þegar bjargað nokkrum mannslífum auk þess að ferðamenn fara víðar vegna þess að þeir vita að þeir geta náð í Neyðarlínuna þegar vanda ber að höndum. Samstarfið við Vodafone hefur verið mjög gott og mikið. Við þurfum að vera við öllu búin og enda getur alvarlegt hættuástand skapast fyrirvaralaust eins og nýlegt dæmi sannar, þegar eitt stærsta eldgos síðustu áratuga hófst nánast fyrirvaralaust. Við slíkar aðstæður geta örugg fjarskipti verið lífsbjörg og við látum einskis ófreistað til að bæta kerfið okkar." "Samstarf okkar við Neyðarlínuna undanfarin ár hefur verið frábært í alla staði. Samstarfið hefur orðið til þess að bæði fjarskiptaþjónusta við almenning og öryggisfjarskiptaþjónusta við viðbragðs- og björgunaraðila hefur stóreflst og samningurinn nú er staðfesting á því, að við ætlum að halda áfram á sömu braut,“ segir Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone. „Við höfum einnig litið svo á, að það sé mikill gæðastimpill fyrir Vodafone að eins mikilvægur aðili og Neyðarlínan skuli velja að eiga samstarf við okkur umfram aðra. "
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira