Reikna með frekari hækkunum á íbúðamarkaði 8. júní 2011 08:06
Greining Íslandsbanka reiknar með því að framhald verði á verðhækkunum og aukinni veltu á íbúðamarkaði á næstunni. „Við sjáum því fyrir okkur frekari hækkanir á verði íbúðarhúsnæðis og að veltan glæðist enn frekar,“ segir í Morgunkorni greiningarinnar. „Skuldavandi heimilanna setur skuldsettum kaupum þó skorður og þar með hversu mikil verðhækkunin mun verða. Einnig er hugsanlegt að bóla myndist á þessum markaði, sérstaklega ef gjaldeyrishöftin verða lengi við lýði. Verðlækkun mun þá líklegast fylgja afnámi hafta.“ Umtalsverð aukning hefur verið í fasteignaviðskiptum undanfarið. Í maí síðastliðnum var 399 samningum um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og í sama mánuði í fyrra voru þeir 192. Aukningin á milli ára er 108%. Heildarfjöldi þinglýstra samninga hefur ekki verið meiri í einum mánuði síðan í lok árs 2007. Það sem af er ári hefur 1.591 samningi verið þinglýst sem er 75% aukning frá sama tíma í fyrra. Samhliða vaxandi veltu hefur verð íbúðarhúsnæðis verið að hækka. Í apríl síðastliðnum mældist hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu 2,7% og er það mesta hækkun sem þannig hefur mælst frá fyrri hluta árs 2008. Í maí í fyrra hafði verðið lækkað um 1,0% yfir tólf mánuði og um10,5% á þessum tíma 2009. Kaupmáttur er nú vaxandi, svartsýnin á undanhaldi, vextir lágir, aðgengi að lánsfjármagni betra og umbætur hafa verið gerðar í skuldavanda heimilanna. Allt þetta hefur nú hvetjandi áhrif á íbúðamarkaðinn. „Hugsanlegt er að heimilin séu að minnka við sig húsnæði til að vinna á skuldavanda sínum og er það að skapa framboð af sérbýli og einnig í leiðinni spurn eftir fjölbýli. Kann þetta að skýra af hverju verðþróunin hefur verið afar ólík á þessum tveim flokkum íbúðarhúsnæðis en verð íbúða í fjölbýli hefur hækkað um 5,4% yfir síðastliðna 12 mánuði á sama tíma og verð sérbýlis hefur lækkað um 6,4%,“ segir í Morgunkorninu. „Önnur skýring kann að vera sú að fjárfestar hafa leitað inn á íbúðamarkaðinn í því dapra úrvali fjárfestingakosta sem er á innlendum fjármálamarkaði. Þeir vilja arðsemi og seljanleika og hafa eflaust helst leitað eftir söluvænum íbúðum í fjölbýli sem auðveldar eru til útleigu og leiguverð á móti verði eignar er hátt.“
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira