Raungengi krónunnar lækkar áfram 7. júní 2011 10:09
Raungengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,2% á milli apríl og maí síðastliðins á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Þessi lækkun er tilkomin vegna lækkunar á nafngengi krónunnar á tímabilinu, en hún lækkaði um 1,1% miðað við vísitölu meðalgengis í maí frá fyrri mánuði. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að verðlagshækkun hefur vegið töluvert upp á móti áhrifum nafngengis á raungengi á þessu tímabili enda hækkaði verðlag um 0,9% miðað við vísitölu neysluverðs á sama tíma. Þetta má sjá í tölum sem Seðlabanki Íslands birti í gær. Raungengi krónunnar hefur lækkað stöðugt frá nóvember á síðasta ári, að apríl síðastliðnum undanskildum þegar engin breyting átti sér stað. Frá því í nóvember hefur raungengið lækkað um 5,3% og stendur það nú í 73,7 stigum, en það hefur ekki verið lægra síðan í maí í fyrra. Þessa lækkun má rekja til þróunar á nafngengi krónunnar á tímabilinu sem einnig hefur lækkað um 5,3% frá því í nóvember miðað við vístölu meðalgengis. Á sama tíma hefur verðlag hér á landi hækkað þó nokkuð, eða sem nemur um 3,3% miðað við vísitölu neysluverðs, en verðlag hefur einnig verið að hækka erlendis og hefur það því ekki leitt til hækkunar á raungengi krónunnar. Flest bendir til þess að töluverð verðlagshækkun sé í pípunum hér á landi, m.a. vegna kjarasamningsbundinna hækkana á launum sem ætla má að fari smám saman yfir í verðlag til neytenda. Kæmi því ekki á óvart að raungengi krónunnar hækki af þeim sökum á næstu mánuðum. Þó veltur það að sjálfsögðu á því hvernig nafngengi krónunnar kemur til með að þróast, sem hefur verið að gefa töluvert eftir upp á síðkastið, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira