Fjarðarál flutti út ál fyrir 250 milljónir á dag 7. júní 2011 09:07
Fjarðaál flutti út ál fyrir tæplega 790 milljónir dollara, sem svarar til 94 milljarða króna á síðasta ári miðað við gengi bandaríkjadollars í desember síðastliðnum. Verðmæti útflutningsins nam því rúmlega 250 milljónum króna hvern dag. Um 33% útflutningstekna fyrirtækisins urðu eftir í landinu, eða rúmlega 31 milljarður króna. Í tilkynningu frá félaginu segir að árlega framleiði Alcoa Fjarðaál í Reyðarfirði um 346 þúsund tonn af áli til útflutnings, í formi hreins gæðaáls, álblanda og álvíra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútgefnu staðreyndaskjali Fjarðaáls, þar sem birtar eru helstu lykiltölur um starfsemina og samfélagsleg áhrif hennar. Í skjalinu, sem ber heitið Staðreyndir um starfsemi Alcoa Fjarðaáls, kemur fram að heildartekjur af útflutningi áls frá landinu hafi numið um 220 milljörðum króna á síðasta ári, en það svarar til um 25 prósenta af útflutningstekjum þjóðarinnar. Fjarðaál er stærsta iðnfyrirtæki landsins og nam hlutur þess í heildarvöruútflutningnum um 17 prósentum. Ekkert annað fyrirtæki hér á landi flytur út meira vörumagn. Að sögn Ruth Elfarsdóttur, framkvæmdastjóra fjármála hjá Alcoa Fjarðaáli, greiddi fyrirtækið um 4,3 milljarða króna í laun og launatengd gjöld á árinu 2010 og námu meðallaun starfsmanna 6,9 milljónum króna á árinu. Auk þess keypti álverið vörur og þjónustu innanlands fyrir um tíu og hálfan milljarð og 1,1 milljarður króna var greiddur í opinber gjöld til ríkis og sveitarfélagsins Fjarðabyggðar í formi fasteignagjalda, hafnargjalda, orkuskatts og fyrirframgreidds tekjuskatts samkvæmt samningi við ríkið. Starfsfólk Fjarðaáls greiddi um 1,3 milljarða króna í tekjuskatt og útsvar. Hjá Fjarðaáli starfa um 480 manns. Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Fjarðaáli, segir að auk þeirra starfi um 320 manns á álverssvæðinu á vegum ýmissa undirverktaka við störf nátengd álverinu. „Hér eru því að jafnaði um 800 manns að störfum,“ segir Guðný. Hún segir að um fjórðungur starfsmanna Fjarðaáls séu konur, en það er hærra hlutfall en í nokkru öðru álveri í eigu Alcoa.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira