AGS með strangt eftirlit á Íslandi eftir að áætlun lýkur 6. júní 2011 15:26
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) mun verða með í ráðum við öll helstu skref í afnámi gjaldeyrishafta, og ljóst að aðkoma sjóðsins hér á landi, a.m.k. hvað það varðar, mun standa mun lengur en efnahagsáætlunin sjálf. AGS vill tryggja endurheimtur lána sinna og mun í því sambandi áfram hafa strangt eftirlit með gangi mála hér. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem gluggað er í viljayfirlýsingu stjórnvalda vegna fimmtu endurskoðunar á áætlun sjóðsins og Íslands sem samþykkt var fyrir helgina. Í Morgunkorninu segir að í viljayfirlýsingunni komi fram að af sex stofnanaskilyrðum (e. structural benchmarks) sem sett voru í síðustu endurskoðun hefur aðeins eitt náðst, en það snýr að endurskipulagningu og endurfjármögnun smærri fjármálafyrirtækja. Raunar náðist annað skilyrði, sem snýr að samþykkt áætlunar um afléttingu gjaldeyrishafta, nokkru síðar en áætlað var, en þau fjögur sem eftir standa eru enn óuppfyllt. Þetta virðist þó ekki hafa staðið í AGS-mönnum, og var tímaramminn sem snýr að þessum skilyrðum mestan part rýmkaður nokkuð. Þar er væntanlega horft til þess að sá hluti áætlunarinnar sem snýr að aðlögun opinberra fjármála hefur gengið býsna vel, og að ýmsir aðrir hlutar áætlunarinnar eru í stórum dráttum á áætlun.„Í viljayfirlýsingunni er mikil áhersla lögð á væntanlega skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs erlendis. Er þar sagt að ekki verði ráðist í þá þætti áætlunar um afléttingu gjaldeyrishafta sem falið geti í sér verulegt útflæði gjaldeyris fyrr en slík útgáfa sé í höfn. Í því sambandi má þess geta að við teljum að framangreind útgáfa muni líklega líta dagsins ljós með haustinu að öðru óbreyttu. Þá er því heitið að AGS muni verða með í ráðum við öll helstu skref í afnámi hafta, og ljóst að aðkoma sjóðsins hér á landi, a.m.k. hvað það varðar, mun standa mun lengur en efnahagsáætlunin sjálf,“ segir í Morgunkorninu. „AGS vill tryggja endurheimtur lána sinna og mun í því sambandi áfram hafa strangt eftirlit með gangi mála hér. Auk þess er á það minnst að þróun nýrrar peningastefnu fyrir Ísland sé nú hafin, og að sú stefna muni m.a. fela í sér kerfisbundin inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði í því skyni að draga úr sveiflum í fjármagnsflæði. Loks er þar minnst á Icesave-málið, þess getið að stjórnvöld hafi farið fram á það við ESA að væntanlegt mál stofnunarinnar gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum verði látið niður falla en því hins vegar heitið að Ísland muni standa við þær skuldbindingar sem til þess bær dómstóll kunni að dæma að staðið skuli við vegna málsins.“
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira