Fyrirtækjum í alvarlegum vanskilum fjölgar áfram 6. júní 2011 08:59
Fyrirtækjum í alvarlegum vanskilum fjölgaði um 200 í maímánuði. Hefur þessum fyrirtækjum því fjölgað um 46% frá árinu 2009 og eru þau nú 6.700 talsins. Þetta kemur fram á vefsíðu Viðskiptaráðs þar sem fjallað er um Beinu brautina svokölluðu. Ávefsíðunni segir að um miðjan desember 2010 var undirritað samkomulag, sem kallað var Beina brautin, sem ætlað var að flýta fjárhagslegri endurskipulagning og úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Að samkomulaginu standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Viðskiptaráð Íslands, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Samtök fjármálafyrirtækja. Í samkomulaginu var gert ráð fyrir því að ljúka tillögugerð um fjárhagslega endurskipulagningu þeirra fyrirtækja sem falla undir samkomulagið fyrir 1. Júní 2011. Tveir bankar hafa náð því markmiði, Arion banki og Íslandsbanki, og því ber að fagna. Samkvæmt frétt Arion banka féllu 470 fyrirtæki undir samkomulagið og þar af er um 320 málum að fullu lokið en um 150 fyrirtæki eiga enn eftir að taka afstöðu til tilboðs bankans. Samkvæmt Íslandsbanka fengu 250 fyrirtæki tilboð frá bankanum vegna Beinu brautarinnar. Upplýsingar um endanlega niðurstöðu innan Landsbankans liggja ekki fyrir. Þessar jákvæðu fregnir koma þó á sama tíma og fregnir af því að alvarlegum vanskilum fyrirtækja fer fjölgandi. Þetta má m.a. sjá í nýlegri útgáfu Seðlabanka Íslands en þar kemur fram að um 6.500 fyrirtæki séu í alvarlegum vanskilum í apríl 2011 en þeim fyrirtækjum hefur raunar fjölgað um 200 í maí og eru þau nú um 6.700 talsins. Fyrirtæki í alvarlegum vanskilum hefur því fjölgað um 46% síðan í mars 2009. Vandinn er því enn umfangsmikill og hætt við því að fjölmörg af þeim fyrirtækjum sem hafa farið í gegnum endurskipulagningu þurfi að fara aftur í gegnum skuldaúrvinnslu ef vanskil halda áfram að aukast, að því er segir á vefsíðunni.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira