Icesave stöðvaði sölu á Íslandsbanka 4. júní 2011 18:31
Áhugi á Íslandsbanka, sem er til sölu hjá skilanefnd Glitnis, slokknaði þegar niðurstaðan í Icesave-þjóðaratkvæðagreiðslunni lá fyrir segir formaður skilanefndar Glitnis. Skilanefnd Glitnis metur 95 prósenta hlut sinn í Íslandsbanka á 111 milljarða króna samkvæmt fjárhagsyfirliti skilanefndar bankans sem endaði í mars síðastliðinum. Langtímamarkmið Glitnis er að selja Íslandsbanka á næstu þremur til fjórum árum, jafnvel fyrr, en skilanefnd Glitnis hefur þegar ráðið svissneska bankann UBS sem ráðgjafa við söluferlið. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir að niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave hafi seinkað sölunni á bankanum. Áhugasamur aðili hafði sett sig í samband við skilanefnd Glitnis í gegnum skrifstofu UBS í New York til að kaupa 95 prósenta hlut í Íslandsbanka. Voru óformlegar viðræður hafnar, að sögn Árna, en áhugi viðkomandi slokknaði eftir að niðurstaðan á síðari þjóðaratkvæðagreiðslunni lá fyrir. „Traustið þvarr," sagði Árni. Í ljósi óvissunnar hafi viðkomandi ekki verið tilbúinn að taka áhættu með fjárfestingu hér á landi. Árni sagðist skynja að erfitt væri að fá fjármagn og nýja fjárfesta inn í landið þar sem traustið á landinu hefði minnkað verulega og sagði hann jafnframt að þetta hefði seinkað áformum Glitnis um sölu á Íslandsbanka. „Ef okkur tekst að selja bankann til útlendinga þá fáum við gjaldeyri, kröfuhafarnir vilja ekki íslenskar krónur. Með sölunni á bankanum hefði verið hægt að taka mjög stórt skref í átt að afléttingu haftanna, enda söluverðið um 15% af heildarvandanum (þeirri fjárhæð sem situr föst í kerfinu innsk.blm). Við erum búnir að setja þetta á hold í bili," segir Árni.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira