Hugsanlega hægt að hraða afnámi hafta Höskuldur Kári Schram skrifar 4. júní 2011 12:06 Árni Páll Árnason.
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að fimmta endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun íslands feli í sér traustyfirlýsingu á efnahagsstjórnina. Hann útilokar ekki að hægt verði að hraða afnámi gjaldeyrishafta. Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins afgreiddi í gær fimmtu og næst síðustu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Samstarfinu á að óbreyttu að ljúka næsta haust. Í yfirlýsingu sem stjórn sjóðsins sendi frá sér í gær kemur fram að búist sé jákvæðum hagvexti á þessu ári. Stjórnvöldum hafi tekist að draga úr hallarekstri ríkissjóðs en hins vegar þurfi að hraða endurskipulagningu á skuldum fyrirtækja og heimila. Sjóðurinn telur ennfremur að launahækkanir og hækkun fasteignaverðs auki verðbólguþrýsting sem gæti hægt á efnahagsbatanum. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að afgreiðsla sjóðsins á efnahagsáætlun íslands sé mikil virði. „Hún kemur auðvitað í kjölfarið á niðurstöðunni í Icesave atkvæðagreiðslunni. Þetta er traustyfirlýsing við efnahagsáætlunina þetta er traustyfirlýsing við það mikla verk sem við höfum unnið við að koma böndum á ríkisfjármálin og efnahagsstjórnina og það er mjög mikils virði núna,“ segir Árni Páll. Sjóðurinn segir áætlun stjórnvalda um afnám gjaldeyrishafta sé varfærin en jafnframt skynsamleg. Árni Páll útilokar ekki að hægt verði að hraða afnámi gjaldeyrishafta. „Ef við stöndum okkur vel. Ef hér verður traustur hagvöxtur byggður á raunverulegri verðmætasköpun en ekki bólu, ef að verðbólga verður hér hófleg, þá ættum við að geta komist fyrr í það en ella,“ segir Árni Páll að lokum.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira