Úlfar Steindórs að eignast Toyota á Íslandi Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. júní 2011 18:39 Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi.
Viðræður um sölu á Toyota á Íslandi eru á lokastigi en Úlfar Steindórsson, forstjóri, freistar þess ásamt Kristjáni Þorbergssyni fjármálastjóra að kaupa félagið af Landsbankanum. Að viðræðunum koma ríkisbankinn Landsbankinn og skilanefnd Landsbankans sem eiga meirihluta í Toyota á Íslandi. Landsbankinn eignaðist Toyota eftir að félög Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns í Vestmannaeyjum lentu í greiðsluerfiðlelikum eftir hrunið. Toyota Motor Marketing Europe sem hefur höfuðstöðvar í Brussel ræður í raun för því fyrirtækið verður að samþykkja umboðsaðila vörumerkisins hér á landi og hefur í raun neitunarvald því ef þeir samþykkja ekki nýjan umboðsaðila Toyota hér á landi verður ekkert af sölu fyrirtækisins. Fullyrt er að gengið verði frá sölunni á allra næstu dögum. Ekki hefur náðst í Úlfar Steindórsson í dag. En heimildarmenn fréttastofu segja að mikil ánægja hafi verið með störf hans fyrir Toyota á Íslandi eftir að Landsbankinn eignaðist félagið enda gjörþekki hann rekstur félagsins og hafi leitt það í gegnum öldudal hrunsins. Gagnrýnendur segja hins vegar að hann og fjármálastjóri félagsins séu í algjörri sérstöðu sem kaupendur vegna stöðu sinnar og hafi haft forskot yfir aðra væntanlega kaupendur. Ekki liggur fyrir hvað endanlegt tap Landsbankans verður vegna Toyota, en bankinn fjármagnaði kaup Magnúsar Kristinssonar á félaginu á sjö milljarða króna árið 2005 af Páli Samúelssyni og fjölskyldu.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira