Milljarðar fara í útrunna þjónustusamninga ráðuneytanna 17. júní 2011 15:12 Mennta- og menningarmálaráðuneyti sker sig verulega úr vegna fjölda útrunna samninga en 26 af samtals 44 samningum þess eru útrunnir eða tæp 60%.
Tæpur þriðjungur allra skuldbindandi rekstrar- og þjónustusamninga sem ráðuneytin hafa gert eru útrunnir. Samtals nema skuldbindingar ríkisins vegna þeirra um 33 milljörðum króna á tímabilinu 2011-14. Þetta kemur fram á vef Ríkisendurskoðunar. Á þessu ári munu samtals tæplega 40 milljarðar króna renna úr ríkissjóði til ýmissa verkefna sem samtök, einkaaðilar eða sveitarfélög sinna samkvæmt svokölluðum skuldbindandi rekstrar- og þjónustusamningum við ráðuneytin. Af samtals 116 slíkum samningum eru 33 nú útrunnir, það er um 28%, þótt haldið sé áfram að starfa og greiða samkvæmt þeim. Um er að ræða samninga sem heyra undir fjögur ráðuneyti: mennta- og menningarmála-, innanríkis-, velferðar- og utanríkisráðuneyti. Samningar annarra ráðuneyta eru enn í gildi. Alls nema skuldbindingar ríkisins vegna útrunninna samninga um 33 milljörðum króna á tímabilinu 2011-14. Í nýrri ábendingu Ríkisendurskoðunar kemur fram að stofnunin telur óviðunandi að unnið sé samkvæmt útrunnum rekstrar- og þjónustusamningum. Mikilvægt sé að þeir verði endurnýjaðir sem fyrst og eldri samningar gerðir upp. Þá þurfi ráðuneytin að tryggja að Ríkisendurskoðun berist ávallt afrit rekstrar- og þjónustusamninga og ársreikninga sem tengjast þeim. Mennta- og menningarmálaráðuneyti sker sig úr vegna fjölda útrunna samninga en 26 af samtals 44 samningum þess eru útrunnir eða tæp 60%. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu vinnur það nú að endurnýjun þessara samninga
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira