Fiskmarkaðurinn í Hull hruninn vegna skorts á fiski frá Íslandi HMP skrifar 14. júní 2011 14:24 Mynd Stefán
Fiskmarkaðurinn í Hull í Bretlandi er hruninn vegna þess að hann fær ekki lengur hráefni frá Íslandi. Þar með lýkur hundrað og fimmtíu ára sögu fiskmarkaðar í borginni. Íslenska fyrirtækið Atlantic Fresh flytur út íslenskan fisk í umboðssölu til Bretlands og hefur um nokkurra ára skeið verið með allan þann fisk sem kom á fiskmarkaðinn í Hull. En nú hefur fyrirtækið hætt að flytja fisk þangað og þar með lýkur 150 ára sögu fiskmarkaðar í borginni. Magnús Guðmundsson stjórnarformaður Atlantic Fresh segir aðalástæðu þessa vera að mjög hafi dregið úr framboði á ferskum fiski frá Íslandi. Fyrirtækið mun nú eingöngu flytja út fisk á markaðinn í Grimsby. Sextán menn missa vinnuna á fiskmarkaðnum í Hull og í breskum fjölmiðlum segir að mönnum sé mjög brugðið við þessa ákvörðun. Magnús vonar þó að fiskkaupmenn í Hull kaupi fisk af fiskmarkaðnum í Grimsby í staðinn, enda stutt á milli staðanna. Meirihlutinn af þeim fiski sem fluttur hefur verið út til Hull hefur verið ýsa, en framboð á henni hefur minnkað mikið undanfarin ár vegna minni kvóta, sem á eftir að minnka enn frekar á næsta fiskveiðiári. Mikið af ýsunni fer á Fisk og franskar staði, sem selja þennan þjóðarrétt Breta. Magnús telur að þjóðarrétturinn muni ekki hækka í verði vegna minna framboðs frá Íslandi.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira