Lex: Ísland sigraði í kjúklingaleiknum 10. júní 2011 09:09
Hinn kunni dálkahöfundur Lex í Financial Times segir að Ísland hafi farið í „kjúklingaleikinn“ við alþjóðasamfélagið og sigrað í þeim leik. Fyrir þá sem vita ekki hvað kjúklingaleikurinn er felst hann í að tveimur bílum er ekið beint á móti hvor öðrum. Sá sem fyrr víkur er kjúklingurinn. Lex segir að eftir að lappirnar voru slegnar undan Íslandi árið 2008 er endurkoma landsins á alþjóðlega fjármálamarkaði staðreynd. Svo virðist sem fjárfestar treysti Íslandi að nýju. Þótt að skuldatryggingaálag Íslands hafi hoppað upp í 264 punkta í gær er það enn mörgum sinnum lægra en álagið á Grikkland, Írland eða Portúgal. Lex segir það kaldhæðni að í samanburði við fyrrgreind þrjú lönd sem einnig var bjargað í fjármálakreppunni hafi aðeins kröfuhafar Íslands tekið á sig afskriftir. Þar að auki virðast fjárfestar ekki hafa áhyggjur af því að Icesave deilan er enn óleyst. Lex spyr þeirrar spurningar hvort Ísland geti ekki verið fyrirmynd Írlands hvað varðar lönd í skuldavanda. Ef fjárfestar eru viljugir til að lána Íslandi eftir að landið hefur farið í gegnum verulega endurskipulagningu á skuldum sínum getur það sama þá ekki átt við Írland?
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira