Spáir óbreyttum stýrivöxtum, skynsemin ráði 10. júní 2011 06:54
Greining Arion banka spáir því að Seðlabankinn muni halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í þessum mánuði og með þeirri ákvörðun verði skynsemin látin ráða. Í Markaðspunktum greiningarinnar segir að flest hafi þróast með þeim hætti að Seðlabankinn veit væntanlega vart í hvorn fótinn hann á að stíga við næstu vaxtaákvörðun. Þrátt fyrir að afar veikur og brothættur efnahagsbati sé hafinn hefur gengi krónunnar lækkað sleitulaust síðastliðna sex mánuði og verðbólga og verðbólguvæntingar hafa verið á uppleið. Þyngst vega þó hinar óhóflegu og innistæðulausu launahækkanir sem hafa litið dagsins ljós og hljóta að hafa komið sem köld vatnsgusa framan í andlit peningastefnunefndar ofan á þann verðbólguþrýsting sem virðist vera í pípunum vegna hrávöruverðshækkana út í heimi. Því virðist ýmislegt benda til þess að Seðlabankinn vilji hreinlega spyrna við fótum og hækka vexti. Hinsvegar tekur greiningin að hinn brothætti efnahagsbati verði látin njóta vafans og að vextirnir verði því óbreyttir. „Þó ýmis rök hnigi bæði með og á móti stýrivaxtahækkun þá teljum við að skynsemissjónarmiðið muni vega þyngra, þ.e. að hinn brothætti efnahagsbati sem er í augsýn, njóti vafans. Bollaleggingar um að sýna mátt sinn og megin verða því látnar sjatna tímabundið í það minnsta, þar til áhrif kjarasamninganna og næstu skref í afnámi gjaldeyrishafta liggja betur fyrir. Við spáum því óbreyttum stýrivöxtum 15. júní,“ segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira