Móðurfélag Olís í gjörgæslu Landsbankans Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. júní 2011 19:00
Athugið að í sjónvarpsútgáfu fréttarinnar er villa um eignarhaldið á Skeljungi sem er að fullu í eigu Skel Investments ehf. en meðal hluthafa þess er Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir. Íslandsbanki var þangað til á síðasta ári eigandi 49 prósent hlutafjár í fyrirtækinu. Fréttastofa biðst velvirðingar á mistökunum. Landsbankinn mun hugsanlega taka Olís yfir vegna erfiðrar skuldastöðu núverandi eigenda félagsins. Bankinn fer sér þó hægt og segist vera að vinna með eigendunum en Olís hefur ekki birt ársreikninga frá árinu 2007. Íslandsbanki varð stærsti hluthafinn í N1 eftir nauðasamninga og fékk hlutabréfin afhent í gær. Þá eru fleiri olíufélög sem gætu lent í höndum bankanna. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar hafa starfsmenn Landsbankans átt í samningaviðræðum við núverandi eigendur Olíuverzlunar Íslands hf. (Olís) til að leysa erfiðan skuldavanda félagsins og er ekki útilokað að skuldum verði breytt í hlutafé og bankinn taki félagið yfir. Bankinn verst þó allra frétta af málinu, enda viðkvæmt. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar verður skuldum breytt í hlutafé ef ekki tekst að leysa vandræði eigendanna. Kristján Kristjánsson, talsmaður Landsbankans, sagði við fréttastofu að bankinn myndi ekki tjá sig um skuldastöðu núverandi eigenda Olís enda væri það stefna bankans að tjá sig ekki um málefni einstakra viðskiptavina. Sérstaka athygli vekur að Olíuverzlun Íslands hf. hefur ekki skilað ársreikningi frá árinu 2007. Sömu sögu er að segja af móðurfélaginu, FAD 1830 ehf. sem er eigandi 100 prósent hlutafjár í Olís. Því eru í raun takmarkaðar upplýsingar til opinberlega um árangur og stöðu Olís. FAD 1830 er með sama lögheimili og Gísli Baldur Garðarsson, stjórnarformaður Olís. Fréttastofan bar efni fréttarinnar undir Gísla Baldur. Hann hafnaði viðtali en neitaði því ekki að hugsanlega yrði skuldum breytt í hlutafé. Aðspurður hvers vegna félagið hefði ekki skilað ársreikningum í rúmlega þrjú ár, sagði hann að félagið hefði nýlega skilað ársreikningi frá árinu 2008. Hins vegar er ekki hægt að nálgast þennan ársreikning ennþá hjá ársreikningaskrá.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira