Hrein eign heimilanna losar 3.700 milljarða 24. júní 2011 09:58
Hrein eign heimilanna í landinu losar 240% af landsframleiðslu eða 3.700 milljarða kr. Er þetta umtalsverð eign sem stendur þrátt fyrir hrun bankakerfisins og þá kreppu sem íslensk samfélag hefur tekist á við á undanförnum árum með tilheyrandi lækkun á verði eigna og hækkun á verðtryggðum og gengisbundnum lánum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að meirihluti sparnaðar heimilanna er bundið í íbúðarhúsnæði. Því til viðbótar eru heimilin með eignir sínar í lífeyrissjóðum, innlánum, verðbréfum og bifreiðum svo það helsta sé talið. Samkvæmt nýju fasteignamati er verðmæti íbúðahúsnæðis 2.850 milljarðar kr. Hrein eign lífeyrissjóðanna nam 1.984 milljörðum kr. í lok apríl síðastliðinn og eignir heimilanna á innlánsreikningum stóðu í 629 milljörðum kr. á sama tíma. Samanlagt eiga heimilin því um 5.463 milljarða kr. í íbúðarhúsnæði, lífeyrissjóðum og innlánum hjá bönkunum. Þetta eru um 43 milljónir kr. á hvert heimili í landinu eða um 353% af landsframleiðslu. Við þetta bætist síðan bifreiðaeign og bein eign í verbréfum en tölur yfir það eru ekki tiltækar. Á móti þessum eignum eru skuldir heimilanna umtalsverðar eða um 110% af landsframleiðslu samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands. Er skuldahlutfall þetta nokkuð hátt í alþjóðlegum samanburði en skýrist það m.a. af því að hlutfall heimila í eigin húsnæði hér á landi er með því hæsta sem gerist í heiminum. Samkvæmt hagtölum Seðlabankans skulduðu heimilin innlánsstofnunum 517 milljarða kr. í lok apríl síðastliðin og eru útlánin þá metin á því virði sem Arion banki, Íslandsbanki og NBI keyptu lánasöfnin á af fyrirrennurum sínum. Þá skulduðu heimilin öðrum lánastofnunum 691 milljarða kr. í lok apríl en með í þessari tölu eru skuldir heimilanna við Íbúðalánasjóð. Skuld heimilanna við lífeyrissjóðina var síðan 174 milljörðum kr. í lok apríl. Samanlagt skulda heimilin því þessum aðilum 1.382 milljarða kr. Við þetta má síðan bæta skuld heimilanna við Lánasjóð íslenskra námsmanna og tryggingafélög.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira