Óheimilt að beita vörslusviptingu Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 23. júní 2011 18:30
Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í dag að Íslandsbanka væri óheimilt að beita vörslusviptingu ef skuldari hefur leitað nauðasamnings. Lögmaður skuldara segir ljóst að kanna þurfi réttarstöðu þeirra sem sætt hafa vörslusviptingu. Árið 2006 gerði skuldarinn lánssamning við Íslandsbanka til að kaupa fellihýsi. Lánið var gengistryggt en fyrir ári síðan var skuldaranum veitt heimild til að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar. Íslandsbanki lýsti þá yfir kröfu vegna nauðasamninga. Mánuði síðar krafðist svo bankinn þess að samningnum um fellihýsið yrði rift og að skuldarinn afhenti bankanum fellihýsið. Íslandsbanki taldi upphaflega lánssamninginn veita heimild til þess. Skuldarinn neitaði að afhenda bankanum fellihýsið og málið endaði fyrir dómi. Héraðsdómur Reykjaness hefur nú úrskurðað að fjármögnunarfyrirtækjum sé óheimilt að krefjast vörslusviptingar ef nauðasamningar hafa verið staðfestir. Sævar Þór Jónsson, lögmaður skuldarans, segir ljóst að núna sé einstaklingum ekki skylt að skila tækjum við það eitt að fara í nauðasamninga eða greiðsluaðlögun. Ákvæði lánasamninga um riftun og beina aðför víki fyrir greiðsluaðlögun. Sævar telur jafnframt að skoða þurfi réttarstöðu þeirra sem hafa þurft að skila tækjum á þessum grundvelli. Í samtali við fréttastofu segir upplýsingafulltrúi Íslandsbanka að við fyrstu sýn virðist þetta mál vera einstakt innan bankans og því sé efast um fordæmisgildi þess. Bankinn muni nú taka sér tíma til að kanna forsendur úrskurðarins og ákveða hvort málið verði kært til Hæstaréttar.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira