Starfsemi Kraums tryggð fram til ársins 2013 23. júní 2011 14:14
Kraumur tónlistarsjóður, sem stofnaður var af Auroru velgerðarsjóði í byrjun árs 2008 sem tilraunaverkefni til þriggja ára, hefur tryggt áframhaldandi starfsemi sína til ársloka 2013. Það er því ljóst að íslenskt tónlistarlíf mun áfram njóta stuðnings frá sjóðnum, en á síðustu 3 árum hefur hann stutt við verkefni yfir 90 listamanna og hljómsveita. Í tilkynningu segir að Kraumur standi á tímamótum á fleiri sviðum því Jóhann Ágúst Jóhannsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri sjóðsins. Jóhann tekur við Eldar Ástþórssyni, sem gengt hefur stöðu framkvæmdastjóra frá því sjóðurinn var stofnaður, sem nú er farinn til starfa fyrir tölvuleikjaframleiðandann CCP. Eldar mun þó áfram tengjast starfsemi Kraums því hann hefur tekið sæti í stjórn sjóðsins. Jóhann Ágúst er með víðtæka reynslu úr íslensku tónlistarlífi þar sem hann hefur m.a. starfað við útgáfumál, skipulagningu viðburða og umboðsmennsku fyrir tónlistarmenn og hljómsveitir. Jóhann er menntaður viðskiptafræðingur úr HÍ en að auki hefur hann lært menningarstjórnun á Bifröst og nýlokið viðburðastjórnunarnámi frá Háskólanum á Hólum. Kraumur var settur á laggirnar með það að markmiði að stuðla að og styrkja íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga tónlistarmenn og auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri. Frá upphafi hefur Kraumur unnið að því að styrkja tiltölulega fá verkefni og listamenn, en þá þannig að stuðningurinn sé afgerandi. Það hefur að mörgu leyti tekist, en Kraumur hefur þó komið víða við á síðustu árum. Nú er svo komið að hátt í 90 listamenn og hljómsveitir, úr öllum geirum tónlistar, hafa hlotið stuðning frá Kraumi.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira